
UN GLOBAL COMPACT ÍSLAND
UN Global Compact er leiðandi á heimsvísu á sviði sjálfbærni fyrirtækja og stofnana. Hjá okkur færðu aðgang að fræðslu, hagnýtum verkfærum og einstöku tengslaneti til að hjálpa þínu fyrirtæki að sækja fram í þágu sjálfbærs atvinnulífs á Íslandi.
Tíu meginmarkmið UN Global Compact
Viðburðir framundan
Okt.
8.
Gervigreind, mannréttindi og réttlát orkuskipti
Okt.
21.
Ábyrg innkaup og sameiginleg ábyrgð
Okt.
22.
Sustainability TrendsWatch 2026: Session 2
Nóv.
11.
Ábyrgir innkaupahættir
Engir viðburðir eru á dagskrá í augnablikinu.
Fréttir

Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram fimmtudaginn 22. október á vegum UN Global Compact Academy. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 22. október Tími: K l. 13:00–14.00 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

UN Global Compact Network heldur vefnámskeiðið „Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility“ miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt, evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.

UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna. Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.




