Fyrsta hraðlinum lokið!
Audur Gudmundsdóttir • 8. desember 2023

Skjámynd af hluta þátttakenda í síðasta tímanum þann 10. desember 2023.
Climate Ambition Accelerator 2023 er lokið!
Undanfarna mánuði hafa yfir 60 fyrirtæki á Norðurlöndunum aukið þekkingu sína og lært að:
- Setja loftslagsmarkmið í samræmi við frumkvæði Science Based Targets.
- Tilkynna um losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt GHG bókuninni.
- Innleiða aðferðir til að draga úr losun.
Þátttakendur hafa einnig kynnt sér hvernig önnur fyrirtæki hafa farið að því að hanna og ná vísindatengdum loftslagsmarkmiðum, fengið tækifæri til að spyrja sérfræðinga krefjandi spurninga og eflt tengslin við þátttakendur frá hinum Norðurlöndunum.
Kærar þakkir til þeirra fyrirtækja sem tóku þátt og við þökkum UN Global Compact Network Denmark, UN Global Compact Network Finland og UN Global Compact Norway fyrir samstarfið.
Hefur þú áhuga á að taka þátt í næsta #Climate Ambition Accelerator og knýja fram öflugar loftslagsaðgerðir?
Opnað verður fyrir umsóknir í næsta Climate Ambition Accelerator vorið 2024.

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.






