Ábyrgir innkaupahættir
Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD).
Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði.
Helstu spurningar sem svarað verður:
Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti?
Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu?
Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum?
Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi?
Fyrir hverja:
Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD).
Hagnýtar upplýsingar
Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember
Tími: Kl. 09:00–11.00 að íslenskum tíma .
Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP
Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.









