AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition

Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026

UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október. Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition.


Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings.



Hagnýtar upplýsingar

Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október

Tími: Kl. 13:00–14:30 að íslenskum tíma .


Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.



Skráning



Eftir Ingvar Orri Bjorgvinsson • 5. október 2026
Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna.  Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 24. september 2026
Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 15. september 2026
Heimsmarkmiðin kalla á okkur öll - 25. september 2026
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 11. september 2026
Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 10. september 2026
Vefnámskeið UN Global Compact og UNODC – 16. september 2026 G-ið í ESG fær oft minnstu athyglina en heldur samt hinum tveimur uppi. Spillingarvarnir og siðferði eru órjúfanlegur hluti sjálfbærnistarfs og forsenda þess að það standist skoðun. UN Global Compact og Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot (UNODC) standa fyrir vefnámskeiði um hvernig fyrirtæki geta fléttað hvort tveggja inn í stjórnarhætti, áhættustýringu og daglegar ákvarðanir – í stað þess að regluvarsla sé afmarkað verkefni á einu borði. Námskeiðið heitir An Integrated Approach: Enhancing Compliance Through a Transformational Governance Lens Námskeiðið byggir á nýrri útgáfu leiðarvísis stofnananna, An Anti-Corruption Ethics and Compliance Programme for Business: A Practical Guide (2. útgáfa, 2026), sem setur nýtt viðmið Sameinuðu þjóðanna um heilindi í rekstri. Meðal umfjöllunarefna : Samþætt nálgun á regluvörslu í stað einangraðrar einingar Breyttar væntingar hagaðila og aukin krafa regluverks Áhættustýring í flóknu rekstrarumhverfi Heilindi sem forsenda sjálfbærni og langtímarekstrarhæfis Á erindi við starfsfólk á sviði lögfræði, regluvörslu, áhættustýringar, innkaupa, innri endurskoðunar og sjálfbærni. Sérstaklega hjá fyrirtækjum með alþjóðlega starfsemi, umfangsmiklar birgjakeðjur eða aðkomu að opinberum innkaupum. Námskeiðið fer fram þann 16. september 2026 , kl. 14:00–15:30 að íslenskum tíma . Tungumál: Enska (þýðing í boði á spænsku, portúgölsku og frönsku) Upptaka: Í boði fyrir skráða Skráning: info.unglobalcompact.org/anticorruption-s1 Leiðarvísirinn í heild sinni: unglobalcompact.org/library/6344
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 9. september 2026
Skanska Group og norrænu net UN Global Compact bjóða til lokaðs forstjórahringborðs á Climate Week NYC, sem fer fram kl. 8:30–10:30 (morgunverður og tengslamyndun frá kl. 8:00) mánudaginn 21. september , í Empire State byggingunni. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, er gestgjafi þessa lokaða samtals — „From Uncertainty to Investment" — þar sem úrvalshópur forstjóra og viðskiptaleiðtoga úr raunhagkerfinu og fjármálageiranum ræðir samkeppnishæfni og viðnámsþol, umbreytingu orku- og innviðakerfa, og hvernig sjálfbærnimarkmið verða að viðskiptalegum veruleika. Fundurinn fer fram undir Chatham House reglunni og er hugsaður fyrir hreinskilnar og framsýnar umræður leiðtoga sem móta næsta skeið sjálfbærs vaxtar. Þátttaka er takmörkuð til að tryggja markvissar umræður. Viðburðurinn er eingöngu fyrir boðsgesti. Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026 Hafið samband við audur@globalcompact.is fyrir nánari upplýsingar.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 4. september 2026
UN Global Compact Network á Norðurlöndunum standa fyrir opinni vefnámskeiðaröð um fyrirtæki og mannréttindi, í tilefni af 15 ára afmæli leiðbeinandi meginreglna Sameinuðu þjóðanna um fyrirtæki og mannréttindi (UNGP). Þrátt fyrir 15 ár af meginreglunum glíma mörg fyrirtæki enn við að koma þeim í framkvæmd og er það viðfangsefni raðarinnar. Næsti þáttur: Decent Work and Stakeholder Engagement Hvernig geta fyrirtæki virkjað starfsfólk og hagaðilasamráð þannig að það byggi upp traust og leiði til betri ákvarðana? Fjallað verður m.a. um þátttöku starfsfólks og hagaðila, inngildingu sem hluta af mannréttindaáreiðanleikakönnun (human rights due diligence) og hagnýtar áskoranir og góðar starfsvenjur í norrænu samhengi.  Námskeiðið fer fram á Zoom þann 10. september 2026, kl. 11:00–12:15 að íslenskum tíma. Þátttaka er gjaldfrjáls og upptaka aðgengileg eftir að námskeiði líkur fyrir skráða. Skráning: globalcompact.fi/human-rights-talks Dagskrá raðarinnar í heild: globalcompact.se/business-human-rights-talks Framundan í röðinni: 19. nóvember – áhætta og tækifæri gervigreindar út frá mannréttindum.
Ný tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og markaðssóknar
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 25. júní 2026
Námskeiðið byggir á nýjum leiðarvísi frá CFO Coalition for the SDGs, Business-Led Blended Finance Playbook, sem sýnir hvernig fyrirtæki geta farið frá því að vera óvirkir þiggjendur fjármögnunar yfir í að hanna, móta og leiða eigin fjármögnunarlausnir.
Er fyrirtækið þitt með samþykkt SBTi-markmið eða stefnir það á kolefnishlutleysi á næstu árum?
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 24. júní 2026
Er fyrirtækið þitt með samþykkt SBTi-markmið eða stefnir það á kolefnishlutleysi á næstu árum? Science Based Targets initiative (SBTi) hefur gefið út Corporate Net-Zero Standard V2, sem felur í sér skýrari kröfur og aukna áherslu á losun í virðiskeðjunni (Scope 3) – þann losunarflokk sem vegur þyngst hjá flestum fyrir
Fleiri færslur