Samantekt eftir COP31: tækifæri og áhætta fyrir atvinnulífið
UN Global Compact Academy býður til veffundar 2. desember þar sem sérfræðingar frá UNFCCC og atvinnulífinu fara yfir helstu niðurstöður COP31 og hvað þær þýða fyrir fyrirtæki.
Dagsetning: Miðvikudagurinn 2. desember.
Tími: Kl. 16:00 að íslenskum tíma.
COP31, loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna, fer fram í Antalya í Tyrklandi 9. til 20. nóvember. Á þinginu koma stjórnvöld, fyrirtæki og aðrir hagaðilar saman til að ræða næstu skref í loftslagsaðgerðum. Áherslan í ár er á framkvæmd loftslagsáætlana, fjármögnun aðgerða og aðlögun og viðnámsþrótt. Umræðurnar móta loftslagsstefnu og fjárfestingar næstu ára.
Fyrir fyrirtæki hefur þetta bein áhrif á hvernig loftslagsáhætta er metin, hvernig mikilvægar eignir og aðfangakeðjur eru varðar og hvar tækifæri til vaxtar og nýsköpunar liggja.
Miðvikudaginn 2. desember klukkan 16:00 að íslenskum tíma verður UN Global Compact með 60 mínútna yfirferð í beinni útsendingu. Þar fara sérfræðingar frá UNFCCC og atvinnulífinu yfir helstu þróun þingsins og hvað hún þýðir í reynd fyrir fyrirtæki.
Þátttakendur öðlast innsýn í:
- hvernig loftslagsaðgerðir geta stutt fjárfestingarákvarðanir, varið mikilvægar eignir og skapað tækifæri til vaxtar
- helstu áherslur í fjármögnun og fjárfestingum í loftslagsmálum, aðlögun og viðnámsþrótti og réttlátum umskiptum
- hvernig tengja má loftslagsaðgerðir við raunhæfar áætlanir sem standast breytt loftslag og hvernig virkja má hagaðila
- reynslu sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna og leiðtoga úr atvinnulífinu, með tækifæri til að spyrja spurninga
Þeir sem komast ekki á viðburðinn geta skráð sig og fá þá upptöku senda þegar hún er tilbúin.









