Stærsti samstarfsvettvangur heims fyrir fyrirtæki sem vilja efla ábyrgan og sjálfbæran rekstur.
UN Global Compact er samstarfsvettvangur þar sem Sameinuðu þjóðirnar og atvinnulífið vinna saman að sjálfbærari framtíð. Markmiðið er að fyrirtæki skapi ekki aðeins fjárhagsleg verðmæti heldur einnig jákvæð áhrif fyrir fólk, samfélög og umhverfið.
Grunnur UN Global Compact eru tíu meginmarkmið á sviði mannréttinda, vinnumála, umhverfismála og varna gegn spillingu. Fyrirtæki og stofnanir sem gerast þátttakendur skuldbinda sig til að samþætta þessar meginreglur í starfsemi sína og leggja sitt af mörkum til framgangs heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Þátttakendur fá aðgang að alþjóðlegri þekkingu, fræðslu, verkfærum og öflugu tengslaneti sem styður þau við að samþætta sjálfbærni í kjarna starfseminnar. Hvort sem fyrirtæki eru að stíga sín fyrstu skref eða hafa þegar náð langt á þeirri vegferð býður UN Global Compact upp á stuðning sem hjálpar þeim að umbreyta metnaði í aðgerðir og ná raunverulegum árangri.
Starfsemin á Íslandi
UN Global Compact Ísland er staðarnet (e. Country Network) starfseminnar í New York. Hlutverk okkar er að styðja íslensk fyrirtæki og stofnanir í vegferð þeirra að ábyrgari og sjálfbærari rekstri með fræðslu, viðburðum, samstarfi og hagnýtum stuðningi sem tekur mið af íslenskum aðstæðum.
Við trúum því að ábyrgur rekstur og sjálfbærni sé sameiginlegt verkefni alls atvinnulífsins. Með því að tengja saman fyrirtæki, stjórnendur og sérfræðinga skapast vettvangur fyrir miðlun þekkingar, lærdóm og samstarf sem gerir þátttakendum kleift að ná meiri árangri saman en hvert í sínu lagi.
- United Nations Global Compact – Sagan og starfsemi á heimsvísu.
- Tíu meginmarkmið UN Global Compact - Grunnurinn að þátttöku í UN Global Compact og leiðarljós fyrir ábyrgan rekstur.
- UN Global Compact Ísland – Upplýsingar um staðarnetið, stjórn þess og starfsfólk.
- Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna – Heimsmarkmiðin 17 um sjálfbæra þróun til ársins 2030.
