ÞEKKINGARBANKI UN GLOBAL COMPACT
Þekkingarbankinn safnar á einn stað fræðslu, þjálfun, verkfærum og öðru efni sem styður fyrirtæki og stofnanir við að innleiða sjálfbærni í starfsemi sína. Hér er að finna efni fyrir öll stig sjálfbærnivegferðarinnar, hvort sem fyrirtæki eru að stíga sín fyrstu skref eða hefur þegar náð langt.
FRÉTTIR
Nýjustu fréttir af starfinu á Íslandi, þar á meðal upplýsingar um viðburði, verkefni, árangur þátttakenda og það sem er fram undan.
AKADEMÍA UN GLOBAL COMPACT
Rafræn námskeið sem starfsfólk þátttökufyrirtækja getur sótt hvar og hvenær sem er. Akademían er aðgengileg allt árið og býður upp á efni fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
HRAÐLAR
Verkefnamiðuð námskeið sem standa yfir í nokkra mánuði og styðja fyrirtæki við að vinna markvisst að eigin markmiðum, til dæmis á sviði loftslagsmála, mannréttinda eða jafnréttis, með leiðsögn sérfræðinga.
FRÆÐSLUPAKKAR
Styttri námskeiðaraðir sem kafa dýpra í afmörkuð viðfangsefni. Fræðslupakkar eru oft þróaðir í samstarfi við önnur staðarnet og veita þátttakendum tækifæri til að byggja upp sérhæfða þekkingu og öflgut tengslanet.
VERKFÆRI
Hagnýt, stafræn verkfæri sem hjálpa fyrirtækjum að meta stöðu sína, greina tækifæri til umbóta og ákveða næstu skref, meðal annars á sviði jafnréttis, launamála og umhverfismála.
