Fræðslupakkar

Fjölbreytt vefnámskeið þar sem farið er á dýptina í málefnum sjálfbærni

  • Nordic Programme on Non-Discrimination

    Skráðu þig á kynningarfund 21. maí kl. 9:30-10:15 (GMT) - SKRÁNING


    Í ljósi vaxandi andstöðu við aðgerðir gegn mismunun á heimsvísu er nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr að fyrirtæki átti sig á því hvernig inngildandi stefna getur dregið úr áhættu og skapað virði – bæði fyrir fyrirtækið og samfélagið. 


    Norræn fyrirtæki, sem starfa í sterkum velferðarkerfum og skora hátt í jafnréttismælingum, eru í góðri stöðu til að sýna fordæmi og leiða veginn í eflingu mannréttinda, jafnræðis og inngildingar í gegnum alla starfsemi og virðiskeðjur.


    Norræna prógrammið um aðgerðir gegn mismunun er netnámskeið sem er ætlað til að styðja norræn fyrirtæki í að efla jafnræði og inngildingu (e. inclusion) í allri starfsemi sinni.


    Ef fyrirtækið þitt er tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættu sem tengist mismunun, mun þetta námskeið leiða ykkur áfram með hagnýt verkfæri og innsýn sérfræðinga.


    Af hverju núna?

    Vernd gegn mismunun er grundvallarmannréttindi. Að skapa inngildandi og réttlátt starfsumhverfi er ekki aðeins siðferðislega rétt, heldur einnig skynsamleg viðskiptaleg ákvörðun. Aðgerðir gegn mismunun stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu, örva sköpunargleði og nýsköpun, laða að og halda í hæfileikaríkt starfsfólk, auka þátttöku og skuldbindingu starfsfólks og bæta orðspor fyrirtækja.


    Fyrirkomulag

    Í gegnum fimm fræðslufundi undir leiðsögn sérfræðinga, jafningjanám og sjálfstæða vinnu öðlast þátttakendur traustan skilning á því hvernig meta má áhrif starfseminnar, forgangsraða aðgerðum og samþætta aðgerðir gegn mismunun á vinnustað, í aðfangakeðjum og samfélaginu.


    I. Föstudagur 29. ágúst kl. 8:30-10:30 (GMT)

    Kynning á dagskránni og verkefnum, tækifæri fyrir þátttakendur til að kynnast hver öðrum.


    II. Föstudagur  19. seotember kl. 8:30-10:30 (GMT)

    Hvað er mismunun? Skilgreiningar og mismunandi nálganir í stjórnun.


    III. Föstudagur 24. október kl. 8:30-10:30 (GMT)

    Ítarleg umræða um ákveðna hópa og áskoranir sem þeir standa frammi fyrir.


    VI. Föstudagur 21. nóvember kl. 7:30-9:30 (GMT)

    Neikvæð áhrif markmiða og bakslag.


    Föstudagur 12. desember kl. 7:30-9:30 (GMT)

    Lærdómur og aðgerðir


    Námskeiðið fer fram á ensku, er kennt á netinu og er eingöngu fyrir þátttakendur í Global Compact.


    Fyrir hverja

    Fulltrúar fyrirtækja sem starfa að félagslegri sjálfbærni, mannréttindum, fjölbreytileika, jafnrétti og inngildingu (DEI), mannauðsmálum eða skyldum sviðum eru hvattir til að skrá sig. 


    Námskeiðið er samstarfsverkefni UN Global Compact í Danmörku, Finnlandi, Íslands og Svíþjóðar. Hvert fyrirtæki getur skráð tvo þátttakendur.

    Skráning á námskeið
  • SBTi Starter Pack - Setting targets

    SBTi Starter pack - stuðningur fyrir norræn fyrirtæki við að setja vísindamiðað loftslagsmarkmið


    SBTi Starter pack er yfirgripsmikið netnámskeið sem ætlað er að veita norrænum fyrirtækjum þá þekkingu og verkfæri sem þau þurfa til að skuldbinda sig við Science Based Targets initiative (SBTi). 


    Ef fyrirtækið þitt er tilbúið að setja sér metnaðarfull markmið um losun sem samræmast alþjóðlegum viðmiðum, mun þetta námskeið leiðbeina þér í gegnum hvert einasta skref.


    Þátttakendur öðlast djúpan skilning á SBTi rammanum – frá undirbúningi og markmiðasetningu til langtíma eftirfylgni. 

    Með því að taka þátt í þremur vefnámskeiðum undir leiðsögn sérfræðinga, auk umræðuvettvangs á netinu og aðgengi að mikilvægum gögnum og verkfærum.


    Af hverju að taka þátt:

    • Leiðsögn sérfræðinga: Lærðu af SBTi-sérfræðingum og reynslumiklum stjórnendum úr norrænu atvinnulífi
    • Virk þátttaka: Taktu þátt í hópavinnu og spurningatímum
    • Jafningjanám: Tengstu sérfræðingum í loftslags- og sjálfbærnimálum í öðrum norrænum fyrirtækjum
    • Ókeypis þátttaka: Opið fyrir fyrirtæki sem eru þátttakendur í UN Global Compact í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

    Uppbygging námskeiðsins

    • Lengd: 1,5 mánuður
    • Tímarammi: Ágúst – október 2025
    • Form: Þrjú netnámskeið (tvær klst. hvert). Aðgangur að umræðuvettvangi á Mighty Networks, þar sem þátttakendur geta spurt spurninga, tekið þátt í umræðum og nálgast leiðbeiningar og hjálparefni.

    Fundur 1: Undirbúningur fyrir markmiðasetningu

    Lærðu hvernig SBTi tengist stærra samhengi loftslagsstefnu, svo sem græna sáttmálanum ESB. Undirbúningur skuldbindinga og að fá samþykki innan fyrirtækisins.


    Efni:

    • Inngangur að SBTi
    • SBTi og græni sáttmáli ESB
    • Tegundir markmiða hjá SBTi
    • Að fá samþykki frá stjórnendum
    • Hópumræður: Hversu tilbúið er fyrirtækið?

    Fundur 2: Markmiðasetning

    Yfirlit yfir tæknilega þætti markmiðasetningar, þ.m.t. skammtíma- og langtímamarkmið, mörk og sannprófunarferli.


    Efni:

    • Meginreglur Corporate Net-Zero Standard
    • Notkun á Target-Setting Tool frá SBTi
    • Ferli SBTi við staðfestingu markmiða
    • Ráðleggingar um aðgerðir utan virðiskeðjunnar
    • Hópumræður: Hvernig setjum við markmið?

    Fundur 3: Að halda sig við markmiðin

    Hvernig á að fylgja eftir markmiðunum eftir að þau hafa verið sett – þ.m.t. samdráttur í losun.


    Efni:

    Endurmat og endursending markmiða

    Stjórnun og eftirfylgni SBTi

    Dæmisögur frá fyrirtækjum sem ná árangri

    Hópumræður: Samantekt



    Hverjir geta tekið þátt?

    Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir stór norræn fyrirtæki sem eru að undirbúa sig til að setja vísindamiðuð markmið (SBT). Það er ekki ætlað til kennslu í grunnatriðum GHG Protocol og nær ekki yfir leið SME fyrirtækja hjá SBTi.


    Aðeins fyrirtæki í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð sem hafa skuldbundið sig gagnvart tíu meginmarkmiðum UN Global Compact geta tekið þátt. Þátttaka er ókeypis.

    SME samkvæmt SBTi eru sjálfstæð fyrirtæki með færri en 500 starfsmenn.


    Nánari upplýsingar og Q&A hér: https://www.globalcompact.fi/sbti-starter-pack

    Skráning á námskeið
  • SPARK

    Námskeið um helstu þætti sjálfbærni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki


    Lítil og meðalstór fyrirtæki drífa áfram atvinnusköpun, sjálfbæran hagvöxt og draga úr fátækt hér á landi sem og á heimsvísu. Þrátt fyrir það standa þau frammi fyrir flóknum áskorunum þegar kemur að innleiðingu sjálfbærni í kjarna reksturs. 


    SPARK fer fram í gegnum reglulegar fjarfunda-vinnustofur í rauntíma og rafræn námskeið sem þátttakendur geta sótt hvenær sem er í Akademíu UN Global Compact. Námskeiðin taka á helstu þáttum sjálfbærni s.s. að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, aðgengi að grænu fjármagni, inngildingu, virðiskeðju og hvernig lítil og meðalstór fyrirtæki verða að mæta vaxandi kröfum um gagnsæi þegar kemur að nýrri sjálfbærnilöggjöf.


    SPARK er vettvangur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, til þess að ræða hugmyndir og lausnir við önnur fyrirtæki í sambærilegri stöðu á alþjóðavísu, byggja upp þekkingu og móta samstarf til að hraða árangri sjálfbærrar þróunar. 


    Í gegnum SPARK fá þátttakendur aðgang að hagnýtum verkfærum og fræðslu, drífandi tengslaneti, innsýn sérfræðinga auk þess sem lagðar eru fram tillögur til að grípa til aðgerða.


    Hvers vegna að taka þátt?


    Lærdómur og samvinna

    Í gegnum vinnustofur fá þátttakendur tækifæri til að skiptast á hugmyndum, deila þekkingu og lausnum við lítil og meðalstór fyrirtæki frá öðrum löndum, sem styrkir sjálfbærnismenningu í þínu fyrirtæki og markaðstækifæri í grænu hagkerfi.


    Rammi utan um sjálfbærnimálin

    Aðgangur að verkfærum og upplýsingum til þess að aðlaga stefnu fyrirtækisins að tíu meginmarkmiðum UN Global Compact.


    Aukinn skilningur

    Lagðar eru til aðgerðir til þess að fyrirtæki nái sjálfbærnimarkmiðum sínum. Tillögur aðgerða miðast m.a. að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, mæta auknum kröfum um gegnsæi sjálfbærniupplýsinga, innleiða Net-Zero stefnu og græna fjármögnun.


    Sveigjanleiki

    Vinnustofur í beinu streymi með reglulegu millibili og rafræn námskeið gera þátttakendum kleift að aðlaga að sinni sjálfbærnivegferð og fara í gegnum fræðsluna á eigin hraða á tíma sem hentar. 


    Aukin samkeppnishæfni

    Fyrirtæki sem leggja áherslu á sjálfbærni í rekstri auka samkeppnishæfni sína auk þess sem það bætir ímynd og eykur líkur á samstarfi við stærri fyrirtæki sem fara í auknum mæli að kalla eftir upplýsingum frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum um sjálfbærni.


    Viðurkenning og sýnileiki

    Þátttakendur fá rafrænt viðurkenningarskjal frá UN Global Compact fyrir hvert lokið námskeið sem fyrirtæki geta deilt á eigin miðlum.


    Hverjir geta tekið þátt?

    Fyrirtæki í UN Global Compact með  færri en 200 starfsmenn geta skráð sig í  SPARK


    Ekki þátttakandi í UN Global Compact? Kynntu þér kosti þess hér.


    Ertu með spurningar? Sendu okkur línu á infoiceland@unglobalcompact.org

    Skráning í SPARK
  • Nordic Nature Starter Pack

    Ert þú tilbúin(n) að hefja vinnu fyrirtækisins í tengslum við náttúruna og ná samkeppnisforskoti í ljósi nýrrar reglugerðar ESB?


    UN Global Compact í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð kynna Nordic Nature Starter Pack sem miðar að því að koma af stað markvissri vinnu fyrirtækja á Norðurlöndum í tengslum við náttúruvernd og sjálfbærni.


    Námskeiðið er sérstaklega hannað fyrir fyrirtæki sem hafa ekki enn hafið stefnumótandi vinnu tengda náttúru. Fræðslan býður upp á verkfæri, innsýn og leiðsögn sérfræðinga sem hjálpa fyrirtækjum að setja náttúruna í forgang.


    Með þátttöku færðu tækifæri til að:

    • Kynnast ástandi líffræðilegs fjölbreytileika og ferskvatns á heimsvísu
    • Skilja hvernig meta má háðleika, áhrif, áhættu og tækifæri fyrirtækis í tengslum við náttúru
    • Fá yfirlit yfir gildandi löggjöf sem snýr að náttúruvernd
    • Fá aðgang að gagnlegum verkfærum, ramma og gögnum sem styðja næstu skref

    Starter Pack samanstendur af röð vefnámskeiða og umræðuvettvangi þar sem þú getur spurt sérfræðinga beint og tengst öðrum þátttakendum.


    Námskeiðin fara fram á fimm vikna tímabili.