Frá skuldbindingu til árangurs: ISO/UNDP 53001 og UN Global Compact í framkvæmd
Hvernig verða sjálfbærnimarkmið að mælanlegum árangri?
Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember.
Tími: Kl. 10:00 að íslenskum tíma.
Hvernig breytast metnaðarfull sjálfbærnimarkmið í aðgerðir sem skila mælanlegum árangri? Um þá spurningu snýst opið vefnámskeið sem UN Global Compact á Íslandi heldur í samstarfi við Fagstaðlaráð í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Staðlaráði Íslands. Þar verður nýr alþjóðlegur staðall, ISO/UNDP 53001:2026, kynntur og fjallað um hvernig hann styður fyrirtæki og stofnanir við að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í daglegan rekstur.
Mörg fyrirtæki hafa sett sér skýr markmið um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Áskorunin liggur yfirleitt í næsta skrefi: að koma markmiðunum yfir í skilgreinda ábyrgð, föst verkferli og tölur sem hægt er að fylgja eftir.
ISO/UNDP 53001:2026 var gefinn út í lok september og er fyrsti alþjóðlegi staðallinn um stjórnunarkerfi fyrir heimsmarkmiðin. Hann er unninn í samstarfi Alþjóðlegu staðlasamtakanna (ISO) og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og veitir umgjörð til að forgangsraða, setja sér markmið, samþætta þau við þá ferla sem fyrir eru og meta árangur yfir tíma. Staðallinn tengist jafnframt þeim stjórnunarkerfum sem fyrirtæki reka nú þegar, svo sem gæða- og umhverfisstjórnun, og nýtist óháð stærð og starfsemi.
Gestur fundarins er Jan Høstrup frá Danish Standards, General Committee Manager hjá ISO/PC 343, tækninefndinni sem leiddi gerð staðalsins. Hann fer yfir tilurð hans og tilgang, helstu kröfur og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta hafist handa í framkvæmd.
Auður Hrefna Guðmundsdóttir hjá UN Global Compact á Íslandi fjallar um hvernig staðallinn fellur að verkefnum samtakanna. UN Global Compact hefur um árabil stutt fyrirtæki við að innleiða meginreglur um ábyrga viðskiptahætti, meðal annars með framvinduskýrslum (Communication on Progress) og framtakinu Forward Faster. Saman geta alþjóðlegar skuldbindingar og stöðluð vinnubrögð myndað heildstæða umgjörð um sjálfbærnivinnuna.
Á dagskrá er inngangur um leiðina frá stefnu til framkvæmdar, kynning Jan Høstrup á ISO/UNDP 53001:2026, erindi Auðar Hrefnu um UN Global Compact í framkvæmd og loks spurningar og umræður.
Fundurinn fer fram á Microsoft Teams og er ætlaður stjórnendum og sérfræðingum í sjálfbærni, gæða- og umhverfisstjórnun og stefnumótun, auk allra sem vilja kynna sér hvernig staðlar geta stutt markvissa sjálfbærnivinnu. Þátttaka er opin öllum að kostnaðarlausu.









