Jafnrétti á óvissutímum: Atvinnulífið sem drifkraftur framfara
Fulltrúar íslenskra fyrirtækja áttu opið og hreinskilið samtal við tvo af lykilstjórnendum UN Women á alþjóðavísu þriðjudaginn 17. nóvember í Húsi atvinnulífsins. UN Women á Íslandi og UN Global Compact á Íslandi buðu til samtalsins í tilefni af Heimsþingi kvenleiðtoga (Reykjavík Global Forum). Frummælendur voru Megan Gilgan, yfirmaður stefnumótandi samstarfs hjá UN Women, og Robyn Oates, yfirmaður sjálfbærra fjármála. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, tók einnig þátt í umræðunum.
Samtalið skiptist í tvö þemu, annars vegar alþjóðlega stöðu og framtíðarsýn og hins vegar Ísland til framtíðar. Markmiðið var meðal annars að ræða hvernig Ísland og íslenskt atvinnulíf geti áfram verið leiðandi í jafnréttismálum á heimsvísu.
Bakslag og breytt landslag
Í samtalinu kom skýrt fram að jafnréttisbaráttan á víða undir högg að sækja, bæði á samfélagsmiðlum og á þjóðþingum um allan heim. Ef fram heldur sem horfir tekur það 171 ár að ná fullu jafnrétti, eða um sex kynslóðir. Á sama tíma hefur stuðningur við kvenréttindasamtök dregist saman um nær þriðjung á aðeins einu ári, og konur stýra enn einungis um 6% skráðra fyrirtækja í heiminum. Tölurnar koma úr nýrri skýrslu UN Women, Gender Snapshot 2026.
Ofbeldi gegn konum var einnig rætt. Það er enn ein stærsta hindrunin í vegi jafnréttis og hefur bein áhrif á þátttöku kvenna í atvinnulífinu og samfélaginu.
Þá var einnig rætt um gervigreind og bent á að hún geti fest ójafnrétti í sessi ef konur eru ekki með í ráðum við þróun hennar og stjórnun.
Atvinnulífið sem drifkraftur
Samhljómur var við borðið um að atvinnulífið sé drifkraftur breytinga. Fyrirtæki geta haft áhrif bæði með því að skapa fjölskylduvæna vinnustaði þar sem ofbeldi líðst ekki og með því að móta viðhorf í samfélaginu. Rætt var um samstarf við markaðsfólk, enda hefur auglýsingageirinn mikil áhrif á það hvernig við hugsum og hegðum okkur.
Lögð var áhersla á að jafnrétti megi ekki vera samtal sem konur eiga eingöngu við aðrar konur. Karlar þurfa að taka virkan þátt og það þarf að vinna með viðhorf og hugarfar strax frá unga aldri. Í því samhengi voru nefnd frumkvæði á borð við Unstereotype Alliance og HeForShe.
Jafnframt var komið inn á fjármálakerfið og velt upp hvort fyrirtæki gætu nýtt innkaup sín til að styðja við jafnrétti, til dæmis með þeim kröfum sem þau gera til birgja.
Ísland til framtíðar
Sérstaða Íslands í jafnréttismálum skapar tækifæri til að hafa enn sterkari áhrif á heimsvísu. Hún byggir ekki síst á starfi kvennahreyfinga, sem hafa skipt sköpum. Jafnrétti er hluti af utanríkisstefnu Íslands og þar vega sögur og góð fordæmi þungt. Íslensk fyrirtæki geta einnig nýtt alþjóðlega vettvanga á borð við UN Global Compact og UN Women til að deila reynslu sinni, læra af öðrum og leggja sitt af mörkum á heimsvísu.
Ljósmyndir: Steinar Juliusson / UN Women















