Ábyrg innkaup og sameiginleg ábyrgð
UN Global Compact Network heldur vefnámskeiðið „Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility“ miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup.
Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda.
Meðal umfjöllunarefna:
- Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup
- Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD
- Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja
- Leiðir til að skipta kostnaði
- Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast
Fyrirlesari er Michaela Streibelt, evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum.
Hagnýtar upplýsingar
Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október
Tími: Kl. 08:00–09:30 að íslenskum tíma .
Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.









