Gleðilega hátíð og takk fyrir samstarfið 2023
Audur Gudmundsdóttir • 22. desember 2023
Við erum svo innilega stolt af þátttakendum okkar sem settu sjálfbærni í forgang í sínum rekstri og sem tóku virkan þátt í starfi UN Global Compact á árinu 2023.
Samvinna er forsenda þess að við getum tekið markvissari skref í átt að ábyrgara hagkerfi.
Í
febrúar
og
apríl 2023 voru haldnir tveir viðburðir fyrir þátttakendur þar sem farið var yfir markmið starfsemi UNGC á Íslandi og leiðbeiningar fyrir nýju framvinduskýrslu UNGC, Communication on Progress, en í mars opnuðum við nýjan stafrænan gagnagrunn þar sem fyrirtæki upplýsa um stöðu sína gagnvart tíu meginmarkmiðum UN Global Compact.
Í
maí fór fram fyrsti
kynningarfundur UN Global Compact á Íslandi
í Hörpu. Í kjölfarið tók
ráðgjafarráð (e. Leadership Council)
UNGC á Íslandi formlega til starfa. Ráðgjafarráðið er skipað reynslumiklu fólki úr íslensku atvinnulífi og hlutverk þess er að móta áherslur og markmið í starfsemi UN Global Compact á Íslandi.
Í
ágúst hófst námskeiðið Climate Ambition Accelerator. Námskeiðið er samvinnuverkefni norrænu staðarneta UNGC. Þátttakendur fá þjálfun í að setja loftslagsmarkmið í samræmi við frumkvæði Science Based Targets, tilkynna um losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt GHG bókuninni og innleiðingu aðferða til að draga úr losun. Námskeiðinu lauk í byrjun desember.
Í
september
tóku íslensk fyrirtæki þátt í
fánadegi Heimsmarkmiðanna
í fyrsta sinn. Verkefnið var unnið í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi með stuðningi frá forsætis-og utanríkisráðuneytinu.
Í
október
fóru fram fyrstu
CEO hringborðsumræður UN Global Compact á Íslandi. Við fengum öflugan stuðning frá Höllu Tómasdóttur, forstjóra The B team sem leiddi umræðurnar. Í kjölfarið gáfu þátttakendur út sameiginlega yfirlýsingu um að íslenskt atvinnulíf og hið opinbera setji málefni sjálfbærni í forgang og vinni saman að því markmiði. Í lok yfirlýsingarinnar segir:
,,Aðeins með metnaðarfullum markmiðum, aðgerðum og hugrekki getum við aukið verðmæti og velmegun fyrir alla með ábyrgum og sjálfbærum hætti.“ Við hlökkum til að halda áfram að vinna saman og fylgja þessari mikilvægu yfirlýsingu eftir á árinu 2024.
Í
nóvember
fór fram sameiginlegur fundur,
Nordic Meeting,
norrænu staðarnetanna (e. Local Networks) í Carlsberg Museum & Business Center í Kaupmannahöfn. Fundurinn er mikilvægur liður í samstarfi staðarneta UNGC á Norðurlöndunum og í ár tóku þátt 180 sérfræðingar frá 150 fyrirtækjum. Dagskrá fundarins tók mið af helstu áskorunum og stöðu fyrirtækja á Norðurlöndunum í dag þar sem farið var kyrfilega ofan í málefni er varða upplýsingaskyldu fyrirtækja, mannréttindi og metnaðarfullar aðgerðir í loftslagsmálum (science-based climate action).
Í byrjun
desember fór loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fram í Dubai. Í aðdraganda ráðstefnunnar tóku 76 norræn fyrirtæki höndum saman og kölluðu í
sameiginlegri yfirlýsingu, eftir aðgerðum í loftslagsmálum og meiri samvinnu milli fyrirtækja og stjórnvalda. Yfirlýsingin var formlega gefin út á COP28 og undir hana skrifa sjö íslensk fyrirtæki.
Við óskum þátttakendum og samstarfsaðilum gleðilegrar hátíðar
og þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu 2023.
Við hlökkum til að styðja íslensk fyrirtæki til enn meiri árangurs á árinu 2024.

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt