Tilnefningar í stjórn UN Global Compact Ísland

15. apríl 2026


Aðalfundur UN Global Compact Ísland


Aðalfundur UN Global Compact Ísland verður haldinn mánudaginn 11.maí 2026 kl.11-12 í Húsi atvinnulífsins og hvetjum við fulltrúa þátttökufyrirtækja okkar eindregið til þess að mæta á fundinn og deila hugmyndum eða tillögum að því hvernig félagið geti best styrkt starfsemina.


Skráning á aðalfund: Smelltu hér

 

Tilnefningar í stjórn


Nú er rúmt ár liðið frá stofnun UN Global Compact Ísland og skipun fyrstu stjórnar félagsins. Starfsemi okkar í þágu sjálfbærs atvinnulífs á Íslandi hefur því stóreflst síðastliðið ár. Við hlökkum til að styrkja starfsemina enn frekar og leitum nú að þremur nýjum stjórnarmeðlimum.

 

Við leitum að fólki sem hefur skýra sýn á sjálfbærni og áhuga á að móta framtíðarstarf UN Global Compact Ísland.

 

Tilnefningar í stjórn: Smelltu hér

 

Allir þátttakendur UN Global Compact eiga rétt á að senda tilnefningu. Við hvetjum áhugasöm til að senda inn tilnefningu eða tilnefna aðila sem gæti hentað í þetta mikilvæga hlutverk. 

 

Hver eru skilyrði fyrir tilnefningu?


Að fulltrúi sem tilnefndur er, starfi hjá fyrirtæki sem er þátttakandi í UN Global Compact.


Að fyrirtæki sé virkur þátttakandi í starfi samtakanna og hafi skilað inn tilheyrandi gögnum því til staðfestingar s.s. framvinduskýrslu (CoP) og hafi greitt félagsgjöld.


Að fulltrúi hafi áhuga, reynslu og þekkingu á sjálfbærnimálum. Fari tilnefndur aðili ekki fyrir málaflokknum innan fyrirtækis skal koma fram í umsókn skriflegur stuðningur forstjóra, framkvæmdastjóra eða forstöðumanns sjálfbærni.


Hvernig tryggir UNGC jafnræði og fjölbreytni við tilnefningu til stjórnar?


Leitast er við að tryggja jafnræði og fjölbreytni við skipan stjórnar, meðal annars með því að fulltrúar komi frá ólíkum þátttökufyrirtækjum, bæði hvað varðar stærð og starfssvið og að seta í stjórn leiði ekki til mögulegra hagsmunaárekstra. Þá er leitast við að einn fulltrúa komi frá óhagnaðardrifnu félagi (e. Non-business participant).


Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um, enda er markvisst leitast við að jafna kynjahlutfall í stjórn félagsins og tryggja fjölbreytta og sterka skipan hennar.


Ertu með spurningu tengda aðalfundinum og/eða tilnefningu í stjórn?

Hafðu samband við okkur: stefania@globalcompact.is

 


Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 13. október 2026
Hvar stendur þitt fyrirtæki þegar kemur að mannréttindum í virðiskeðjunni? Dagsetning: Mánudagurinn 2. nóvember. Tími: Kl. 11:00 að íslenskum tíma.
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram þriðjudaginn 24. nóvember á vegum UN Global Compact Academy. Lotan ber yfirskriftina The Clean Energy Advantage: How a Just Transition Can Ensure Business Resilience. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Í þessari lotu er sjónum beint að orkuskiptunum: hvað drífur þau áfram, hvað hindrar útbreiðslu hreinnar orku og hvernig fyrirtæki geta nýtt fjárfestingar, kaupmátt og samtakamátt til að auka hlut endurnýjanlegrar orku og skapa verðmæti til lengri tíma. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember Tími: Kl. 14:00–15:00 að íslenskum tíma. Tungumál: Enska, með þýðingu á spænsku, portúgölsku og frönsku. Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 6. október 2026
Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility er yfirskrift vefnámskeiðs sem haldið verður á vegum UN Global Compact Deutschland miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt , evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Bjorgvinsson • 5. október 2026
Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.  Skráning
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna.  Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 24. september 2026
Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 15. september 2026
Heimsmarkmiðin kalla á okkur öll - 25. september 2026
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 11. september 2026
Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026
Fleiri færslur