Learning series: Science Based Targets Net Zero Standards
Er fyrirtækið þitt með SBTi-markmið eða stefnir á kolefnishlutleysi á næstu árum?
Þá er ný útgáfa af Corporate Net-Zero Standard frá Science Based Targets initiative (SBTi) mikilvæg lesning.
Hvort sem fyrirtækið þitt er þegar með samþykkt SBTi-markmið eða er að undirbúa sín fyrstu er mikilvægt að kynna sér nýju útgáfuna og skilja hvaða áhrif breytingarnar kunna að hafa á næstu skref.
SBTi hefur gefið út Corporate Net-Zero Standard V2, afrakstur þriggja ára þróunarvinnu sem miðar að því að gera fyrirtækjum auðveldara að setja sér trúverðug markmið og sýna fram á raunverulegan árangur í samdrætti gróðurhúsalofttegunda.
Ein stærsta breytingin felur í sér aukna áherslu á Scope 3 losun, þ.e. losun sem verður til í virðiskeðjunni hjá birgjum, verktökum og viðskiptavinum. Hjá flestum fyrirtækjum er þetta stærsti hluti heildarlosunarinnar og jafnframt einn sá flóknasti að mæla og draga úr. Nýi staðallinn leggur meiri áherslu á skýrar aðgerðir og leiðir fyrirtæki betur í gegnum það hvernig hægt er að ná árangri í virðiskeðjunni.
UN Global Compact Academy, í samstarfi við Science Based Targets initiative (SBTi), býður upp á tvö vefnámskeið þar sem farið verður yfir helstu breytingarnar og hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig fyrir innleiðingu útgáfu 2.
📍
Lota 1 – Kynning á SBTi Corporate Net-Zero Standard V2: Breytingar og væntingar til fyrirtækja
Dagsetning: 7. júlí 2026 kl. 13:00–14:00 (íslenskur tími)
Farið verður yfir hvað er nýtt í útgáfu 2, hvaða áhrif breytingarnar hafa á fyrirtæki og fyrstu hagnýtu skrefin í undirbúningi.
Skráning:
https://info.unglobalcompact.org/sbt-s1
📍 Lota 2 – Að færa sig yfir í útgáfu 2: Hvernig og hvenær
Dagsetning: 9. júlí 2026 kl. 13:00–14:00 (íslenskur tími)
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Skref-fyrir-skref yfirferð yfir umbreytinguna yfir í nýja staðalinn, helstu tímamörk og leiðbeiningar fyrir fyrirtæki sem eru að setja sér vísindaleg loftslagsmarkmið í fyrsta sinn eða undirbúa yfirfærslu úr fyrri útgáfu.
Skráning: https://info.unglobalcompact.org/sbt-s2
Kemstu ekki í beina útsendingu?
Skráðu þig samt og fáðu aðgang að upptökum námskeiðanna þegar þær verða aðgengilegar í Akademíu UN Global Compact.
UN Global Compact Academy
er hluti af þeim ávinningi sem fylgir þátttöku í UN Global Compact og veitir þátttakendafyrirtækjum aðgang að fjölbreyttu fræðsluefni, sérfræðikynningum og verkfærum sem styðja við innleiðingu sjálfbærni og metnaðarfullra loftslagsmarkmiða.










