UN Global Compact á Íslandi innleiðir gervigreind
Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland, hefur lokið Claude AI námskeiðinu á íslensku og hlotið staðfestingu á AI-læsi (Certificate of Completion — Staðfesting á AI-læsi með Claude). Námskeiðið er liður í markvissri uppbyggingu félagsins, þar sem áhersla er lögð á að nýta gervigreind af þekkingu, ábyrgð og með skýrum ramma.
Nýtt félag byggt á ábyrgum grunni
UN Global Compact Ísland er ungt félag í örum vexti. Stjórn og framkvæmdastjóri hafa lagt áherslu á að byggja starfsemina upp í anda þeirra tíu meginmarkmiða sem félagið stendur fyrir á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfisverndar og baráttu gegn spillingu. Þetta á ekki síður við um nýjar tæknilausnir.
„Þegar verið er að byggja upp nýtt félag skiptir máli að gera það rétt frá byrjun,“ segir Auður Hrefna. „Gervigreindin er komin til að vera og hún getur hjálpað litlu skrifstofunni okkar að veita þátttakendum okkar betri þjónustu og ná sínum markmiðum. En þá þarf að nota hana rétt.”
Hvers vegna AI-læsi skiptir máli
United Nations Global Compact hefur á alþjóðavísu lagt áherslu á að gervigreind sé bæði tækifæri og áhætta fyrir sjálfbæran rekstur. Í greiningu samtakanna um gervigreind og Heimsmarkmiðin kemur fram að gervigreind hafi möguleika á að styðja við mannréttindi, bæta vinnuaðstæður, vernda umhverfið og vinna gegn spillingu en að fullnýting þeirra möguleika krefjist meðvitaðrar hönnunar, ábyrgrar stjórnunar og þátttöku breiðs hóps. Skýrsla UN Global Compact og Accenture, Generative AI for the Global Goals, tekur í sama streng og hvetur til ábyrgrar þróunar gervigreindar þar sem nýsköpun er í jafnvægi við inngildingu, sjálfbærni og sanngirni.
Fyrir lítið félag eins og UNGC Ísland þýðir þetta í verki að starfsfólk skilji hvað gervigreindin getur og hvað hún getur ekki. Þannig nýtist hún best þar sem hún léttir undir í verkefnum, yfirferð, þýðingum, undirbúningi fræðsluefnis og samantektum svo tími starfsfólks fari frekar í það sem skiptir mestu máli sem eru samskipti við þátttökufyrirtæki, að byggja upp tengsl og efla samstarf.
Gervigreindin kemur ekki í staðinn fyrir fólk
Hjá UN Global Compact Ísland er gervigreindin nýtt sem aðstoðartæki í daglegum störfum m.a. til undirbúnings fræðslu- og markaðsefnis og greininga en aldrei til að taka yfir mannlegt mat eða samskipti við fólk.
„Gervigreindin getur hjálpað mér að semja texta og bæta góðar hugmyndir, en hún getur ekki skapað þessa dýnamík sem verður til í samtali milli okkar og þátttakenda, þar er einlægnin, hluttekningin og augnablikin þegar tveir fá saman góða hugmynd um hvernig takast má á við áskoranir og samgleðjast þegar vel gengur.“ segir Auður Hrefna. „Hún getur ekki lesið milli línanna í samtali, hún ber ekki ábyrgð og hún getur ekki staðið fyrir gildum félagsins. Það gerum við.“
Brúin milli alþjóðlegra viðmiða og íslensks atvinnulífs
UN Global Compact Ísland mun halda áfram að gera gervigreindina að umræðuefni og styðja við fyrirtæki á þessari vegferð á næstu misserum, meðal annars með viðburðum og fræðslu. Þátttökufyrirtæki hafa nú þegar aðgang að námskeiðunum AI and Human Rights 101 og Responsible Investing into AI, sem gefa fyrirtækjum verkfæri til ábyrgrar þróunar og innleiðingar gervigreindar.
„Við hvetjum þátttökufyrirtækin okkar til að nýta sér þessa fræðslu og vera leiðandi í samtalinu um ábyrga gervigreind, því hvernig við nýtum hana skiptir samfélagið allt máli. Hvað varðar félagið á Íslandi þá ætlum við að sýna í verki að það er hægt að byggja upp lítið félag með nútíma tækni án þess að gefa afslátt af gildunum okkar,“ segir Auður Hrefna.
Námskeið UN Global Compact um ábyrga þróun og innleiðingu á gervigreind má finna hér: https://unglobalcompact.org/academy/responsible-ai-navigator










