Non-Discrimination & Equality Prógram
Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality”
Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni.
Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun?
Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja.
Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu.
Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi.
Viltu vita meira um námskeiðið?
Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl. Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim.
Dagsetning: 23. apríl
Tími: 12:00 - 13:00
Hver ávinningurinn?
Með þátttöku í námskeiðinu munt þú:
- Skilgreina helstu forgangsmál þíns fyrirtækis, læra að greina núverandi stöðu og hvernig innleiða má markvissar aðgerðir sem varna mismunun og ójafnrétti.
- Sýna starfsfólki, fjárfestum og öðrum hagaðilum að þitt fyrirtæki axli ábyrgð þegar kemur að málefnum tengdum mismunun og ójafnrétti. Fyrirtæki sem taka skýra afstöðu styrkja samkeppnisstöðu sína og laða að sér hæfileikaríkt starfsfólk.
- Þróa skýra aðgerðaáætlun um næstu skref til að efla starf þíns fyrirtækis á sviði jafnréttis og vinnu gegn mismunun.
Námskeiðið stendur yfir frá 3. september til 3. desember
Skráningu lýkur Föstudaginn 22.maí
Athugið að námskeiðið hentar morgunhönum einstaklega vel en vegna tímamismunar milli Íslands og Norðurlandanna fara vefnámskeiðin fram klukkan 7:15 (Í september og október) og 8:15 (í nóvember og desember)










