Kauphallar- bjöllunni hringt fyrir jafnrétti kynjanna
12. mars 2026
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn hátíðlegur - Takk fyrir komuna!
Þann 11.mars síðastliðinn var kauphallar- bjöllunni hringt fyrir jafnrétti í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, sem haldinn er hátíðlegur 8. mars ár hvert.
Eins og hefð er fyrir fagna UN Global Compact á Íslandi, Nasdaq á Íslandi, UN Women Ísland og Félag kvenna í atvinnulífinu Alþjóðlegum baráttudegi kvenna með sameiginlegum viðburði sem skapar vettvang fyrir samtal um jafnrétti í atvinnulífinu.
Viðburðurinn í ár var einstaklega vel heppnaður en áhersla var lögð á að virkja fjármagnsmarkaði til að auka gagnsæi, ábyrgð og hvata sem styðja við réttindi kvenna og efnahagslega valdeflingu þeirra. Þetta rímar vel við þema dagsins í ár: “Rights. Justice. Action. For ALL Women and Girls.” Þá vakti Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq á Íslandi, athygli á því að aukið kynjajafnvægi er lykilforsenda heilbrigðs markaðar og sjálfbærrar verðmætasköpunar.
Heiðursgesturinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, reifaði söguna í samhengi við það bakslag sem nú á sér stað víða um heim hvað varðar jafnréttismál. Hún minnti viðstadda á að oft þarf lítið til að grafa undan áratuga vinnu sem ekki er auðvelt að byggja upp að nýju. Það er því til mikils að vinna að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur á sviði jafnréttis með óþrjótandi baráttu kvenna í gegnum tíðina.
Þá sagði Vilhelm Már, forstjóri Eimskips, einnig heiðursgestur, frá markvissri vinnu fyrirtækisins í þágu vinnustaðamenningu þar sem jafnrétti kynjanna er í forgrunni. Við í Global Compact erum þakklát fyrir að hafa þátttöku-fyrirtæki eins og Eimskip innanborðs sem miðlar þekkingu sinni og veitir öðrum fyrirtækjum innblástur!
Við þökkum öllum fyrir komuna og fyrir að taka þátt í samtalinu um jafnrétti í atvinnulífinu, enda spilar einkageirinn lykilhlutverk í því að hraða framvindu í átt að betra og jafnara samfélagi fyrir öll.

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt

Í ár fögnum við 25 ára afmæli UN Global Compact, stærsta sjálfbærniverkefnis heims á vegum Sameinuðu þjóðanna og stofnun félagsins á Íslandi. Viðburðurinn markar bæði tímamót og tækifæri þar sem hann hann endurspeglar árangur síðustu ára og kveikir nýjar hugmyndir um framtíð íslensks atvinnulífs í takt við heimsmarkmið

SKRÁ ÞÁTTTÖKU Í FÁNADEGI HEIMSMARKMIÐANNA 2025 Árið 2025 stöndum við á krossgötum þar sem aðeins fimm ár eru eftir til að vinna að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Staðan í heiminum er krefjandi með yfirvofandi loftslagsvanda, ójöfnuði og átakalínum milli þjóða sem draga úr framförum. Þrátt fyrir það sýna nýjustu skýrslur að árangur hefur náðst þegar við stöndum saman. Samkvæmt nýjustu framvinduskýrslu Sameinuðu þjóðanna eru aðeins um 35% markmiða á réttri leið. Þó hefur á þessum tíma tekist að ná verulegum framförum í mikilvægum málaflokkum þar sem tíðni ungbarnadauða hefur lækkað, fleiri börn hafa aðgang að skóla og yfir 90% jarðarbúa hafa nú rafmagn ( UN SDG Report 2025 ). Flöggum 25. september 2025 Fánadagur Heimsmarkmiðanna er tækifæri til að minna okkur á að hvert einasta framtak skiptir máli. Með því að flagga fánanum sýnum við vilja til að vera hluti af lausninni, hvort sem við erum fyrirtæki, skóli eða stofnun. Með því að flagga fána Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna erum við að sýna samstöðu, vekja umræðu og hvetja til nýrra hugmynda sem styrkja vegferðina að betri heimi fyrir öll. Hverjir geta tekið þátt? Fyrirtæki, stofnanir, skólar, samtök og sveitarfélög sem eru þátttakendur í UN Global Compact og/eða hafa hafið innleiðingu á heimsmarkmiðum í rekstur sinn geta tekið þátt í framtakinu. Vinsamlega skráðu þátttöku hér. Athugið einnig er hægt að taka þátt rafrænt (á samfélagsmiðlum). Leiðbeiningar fyrir þátttöku Þegar þátttaka hefur verið skráð fær tengiliður sendar leiðbeiningar fyrir fánadaginn, merkingar fyrir samfélagsmiðla og tillögur að færslum fyrir heimasíður/samfélagsmiðla sem hægt er að útfæra með eigin sniði. Þar sem fánadagurinn er samstillt framtak, þá biðjum við ykkur um að fylgja sérstaklega leiðarvísinum þegar kemur að merkingum fyrir samfélagsmiðla. Endilega takið myndir og myndbönd af fánanum með starfsfólki/forstjóra og deilið á ykkar miðlum. Panta fána Til að lágmarka kolefnisfótspor eru fánarnir prentaðir á Íslandi. Fáninn kostar 22.500 kr. stk. og er sendingarkostnaður innifalinn í verðinu. Stærð fána er 150x100cm og passar á 6m fánastöng með krækju að ofan og neðan. Texti er á íslensku. SKRÁ ÞÁTTTÖKU OG PANTA FÁNA Deildu þátttökunni Þann 25. september n.k. eru þátttakendur hvattir til að deila þátttöku sinni í fánadeginum á eigin miðlum. Leiðbeiningar (e. toolkit) með tillögum að texta, #merkingum, myndefni o.fl. verða sendar þegar þátttaka hefur verið staðfest. Um framtakið United Nations Global Compact hefur frá árinu 2019 staðið fyrir fánadegi Heimsmarkmiðanna. Vinsældir þessa framtaks hafa farið ört vaxandi um allan heim og sífellt fleiri flagga fána fánanum árlega. UN Global Compact á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa nú í þriðja sinn, saman að deginum hér á landi. Fánadagur Heimsmarkmiðanna er frábært tækifæri til að vekja athygli og skapa umræðu um það sem þátttakendur eru að gera til að vinna markvisst að markmiðunum. Eru sjálfbærnifrumkvöðlar í fyrirtækinu? Fánadagurinn veitir tækifæri til að miðla sögum og viðburðum á heimasíðu eða samfélagsmiðlum. Hvetja má starfsfólk til að vinna í einkalífi jafnt sem í starfi að heimsmarkmiðunum. Fræðslan Good Life Goals er einn vettvangur til að hefja þessa vegferð. Kynna má fyrir hagaðilum, þ.m.t. fyrirtækjum í virðiskeðju, viðskiptavinum, neytendum og nærsamfélaginu, aðgerðir í tengslum við heimsmarkmiðin sem þátttakandi vinnur út frá. Hvatning til frumkvöðla og ungu kynslóðarinnar um að móta nýjar leiðir til að ná fram heimsmarkmiðunum.





