SPARK - Að efla sjálfbærni í virðiskeðjunni
UN Global Compact býður virkum þátttakendum í UN Global Compact að taka þátt í SPARK, alþjóðlegu fræðsluprógrami sem UN Global Compact stendur fyrir en prógramið er hannað til að hjálpa fyrirtækjum að efla sjálfbærni sinnar virðiskeðju. Kröfur um sjálfbærni í virðiskeðju hafa aukist og því leita mörg fyrirtæki að hagnýtum leiðum til að ýta undir seiglu, auka gagnsæi og styðja við frammistöðu sinna birgja. SPARK er skýrt og vel uppbyggt fræðsluprógram sem veitir birgjum verkfærin og leiðbeiningarnar sem þeir þurfa til að ná árangri.
Af hverju ætti fyrirtæki að taka þátt?
Með þátttöku í SPARK geta fyrirtæki aukið sjálfbærni í virðiskeðju og þar með aukið eigin samkeppnishæfni, stuðlað að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, aukið yfirsýn yfir framvindu og frammistöðu birgja og styrkt tengsl við birgja í gegnum sameiginleg markmið og markvissan stuðning.
Á þremur mánuðum munu birgjar þeirra fyrirtækja sem taka þátt í SPARK öðlast hagnýta þekkingu á lykilþáttum sjálfbærni, svo sem þeim tengdum umhverfi, ábyrgum vinnumarkaði, og ábyrgum stjórnarháttum. Markmiðið er að birgjar mæti væntingum ykkar fyrirtækis í auknu mæli og með skilvirkari hætti. Slíkt ýtir undir samkeppnishæfni ykkar fyrirtækis.
Skráning opin!
Við bjóðum virkum íslenskum þátttökufyrirtækjum sem vilja efla sjálfbærni sinnar virðiskeðju að að skrá sig í SPARK prógramið.
Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar:
stefania@globalcompact.is
Skráning er opin til 31. maí









