Þátttökugjöld


UN Global Compact Ísland eru frjáls félagasamtök og ekki rekin í hagnaðarskyni. Meðfylgjandi er gjaldskrá UN Global Compact Ísland sem tekur mið af alþjóðlegri gjaldskrá United Nations Global Compact.

Árlegt þátttökugjald er reiknað á grundvelli árlegrar heildarveltu fyrirtækis í bandaríkjadölum (USD). 


Í þeim tilgangi að tryggja fyrirsjáanleika og jafnræði gagnvart gengisflökti eru þátttökugjöld reiknuð í bandaríkjadölum (USD) og við útreikning í íslenskar krónur er miðað við fast viðmiðunargengi, 135 krónur á móti einum bandaríkjadal, sem samsvarar meðalgengi síðustu þriggja ára.


Eftirfarandi þátttökugjöld gilda frá og með 1. mars 2026.

Árleg heildarvelta fyrirtækis í USD Árlegt þátttökugjald fyrirtækis (USD) Árlegt þátttökugjald fyrirtækis (ISK) Árlegt þátttökugjald dótturfélags (USD) Árlegt þátttökugjald dótturfélags (ISK)
> 30 milljarðar $30,000 4.050.000 ISK $15,000 2.025.000 ISK
10 - 30 milljarðar $25,000 3.375.000 ISK $12,500 1.687.500 ISK
5 - 10 milljarðar $20,000 2.700.000 ISK $10,000 1.350.000 ISK
1 - 5 milljarðar $15,000 2.025.000 ISK $7,500 1.012.500 ISK
500 milljónir - 1 milljarður $7,500 1.012.500 ISK $3,750 506.250 ISK
250 - 500 milljónir $5,000 675.000 ISK $2,500 337.500 ISK
50 - 250 milljónir $2,500 337.500 ISK $1,250 168.750 ISK
25 - 50 milljónir $1,334 180.000 ISK $889 120.000 ISK
< 25 milljónir $741 100.000 ISK $556 75.000 ISK
Félög, samtök og stofnanir $741 100.000 ISK Á ekki við Á ekki við

Um þátttökugjöld móðurfélaga/samstæðu og dótturfélaga


  1. Móðurfélag/samstæða sem gerir upp fyrir samstæðuna í heild:
  • Móðurfélag/samstæða sem gerir upp fyrir samstæðuna í heild greiðir þátttökugjöld skv. gjaldskrá.
  • Dótturfélög sækja um þátttöku í gegnum heimasíðu United Nations Global Compact
  • Dótturfélög þurfa ekki öll að gerast aðilar strax, þau geta komið inn þegar hentar.
  • Móðurfélag/samstæða skilar sameiginlegri skýrslu um framvindu (CoP).
  • Dótturfélögum er heimilt/valkvætt að skila inn sjálfstæðri framvinduskýrslu (CoP).


2. Móðurfélag/samstæða og dótturfélög sem gera upp hvort í sínu lagi:

  • Móðurfélag/samstæða greiðir samkvæmt gjaldskrá.
  • Dótturfélög greiða dótturfélagsverð samkvæmt gjaldskrá.


  3. Dótturfélag með móðurfélag/samstæðu sem ekki er þátttakandi í UN Global Compact:

  • Getur gerst sjálfstæður þátttakandi.
  • Greiðir þátttökugjöld samkvæmt gjaldskrá.