Hraðlar

VIÐSKIPTA- OG MANNRÉTTINDAHRAÐALL 2027

(e. Business and Human Rights Accelerator)

Frá skuldbindingum til aðgerða í þágu mannréttinda árið 2027


Hvað er viðskipta- og mannréttindahraðall?

UN Global Compact hefur opnað umsóknir fyrir viðskipta- og mannréttindahraðal  (Business & Human Rights Accelerator). Um er að ræða þriggja mánaða hagnýtt námskeið fyrir íslensk fyrirtæki í UN Global Compact sem hefst í febrúar 2027. Markmiðið er að styðja fyrirtæki í að fara frá skuldbindingum til aðgerða í þágu mannréttinda og vinnuréttinda með því að nýta eigin gögn og framkvæma áreiðanleikakönnun.


Viðskipta- og mannréttindahraðallinn er námskeið fyrir þátttakendur í UN Global Compact þvert á atvinnugreinar og svæði. Námskeiðið hentar öllum stærðum fyrirtækja.

Frá því að hraðallinn var fyrst haldinn árið 2022 hafa yfir 3.000 fyrirtæki og 6.000 þátttakendur í meira en 60 löndum tekið þátt. Þetta er fimmta árið sem hraðallinn er í boði og hefur hann verið endurskoðaður með áherslu á hagnýta þekkingu, verklega vinnu og jafningjafræðslu.


Tvær opnar kynningar verða haldnar 22. október, kl. 07:00 og kl. 14:00, að íslenskum tíma. Námskeiðið er haldið af höfuðstöðvum en staðarlotur fara fram á Íslandi fyrir okkar þátttakendur. Þátttaka er fyrirtækjum að kostnaðarlausu.


Hefur þú áhuga? Vinsamlega hafðu samband við skrifstofu með að senda póst á infoiceland@unglobalcompact.org eða skráðu þátttöku strax  hér.

UMHVERFIS-OG LOFTSLAGSHRAÐALL

(e. Climate Ambition Accelerator)

Flýttu framförum og settu vísindaleg loftslagsmarkmið (SBTi)


Stefnir fyrirtæki þitt á að setja vísindaleg loftslagsmarkmið (e. Science Based Targets) um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda? Eru tæknilegar kröfur og viðmið flókin og yfirþyrmandi?

Climate Ambition Accelerator er sex mánaða námskeið sem styður fyrirtæki til þess að setja sér vísindalega miðuð loftslagsmarkmið (Science Based Targets). Markmið námskeiðsins er að veita fyrirtækjum þá þekkingu og færni sem er nauðsynleg til að samræma aðgerðir þeirra við markmið um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráðu hækkun og um leið að stefna að kolefnishlutleysi árið 2050.

Þátttakendur auka þekkingu sína samhliða því að efla tengslanet og læra af öðrum þátttakendum. Þátttakendur fá enn fremur tækifæri til að vinna að eigin loftslagsgögnum og áætlunum undir leiðsögn sérfræðinga. 

Hefur þú áhuga? Vinsamlega hafðu samband við skrifstofu á infoiceland@unglobalcompact.org til að fá nánari upplýsingar.