Aðlögun rekstrar að markmiðum um sjálfbæra þróun
Audur Gudmundsdóttir • 4. nóvember 2024
Um miðjan október s.l. stóðu Háskólinn á Akureyri og UN Global Compact á Íslandi fyrir málstofu þar sem umfjöllunarefnið var aðlögun rekstrar að markmiðum um sjálfbæra þróun – ávinningur og áskoranir fyrirtækja. Kjartan Sigurdsson, lektor við Viðskiptadeild HA og Audur Hrefna Gudmundsdottir, svæðisstjóri UN Global Compact á Íslandi fluttu erindi. Í sínu erindi lagði Kjartan áherslu á frumkvöðla-og nýsköpunarumhverfið og mikilvægi þess að verkefni þeim tengdum séu í samræmi við sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun eru lykilþættir breytinga og veltur því langtímaárangur þeirra í auknum mæli á því að hafa skýra áherslu á sjálfbærar lausnir og einlægan vilja til að takast á við samfélagslegar áskoranir. Auður Hrefna fór yfir þær miklu kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja varðandi yfirsýn á félagslega, umhverfislega og stjórnunarlega þætti rekstrar. Athyglinni var beint að leiðum fyrir fyrirtæki til að samþætta markmið um sjálfbæra þróun við kjarnarekstur. Auk þess sem fjallað var um hvernig mælingar og skýrslugerð geta hjálpað fyrirtækjum að fylgja markmiðum eftir og sett samhengi við þær kröfur sem gerðar er til fyrirtækja og koma fram í nýju evrópsku sjálfbærni löggjöfinni. Málstofan var vel sótt, í sal og í gegnum fjarfund og sköpuðust líflegar og góðar umræður. Við þökkum Sigurði Ragnarssyni, forseta Viðskiptadeildar HA og starfsfólki fyrir frábærar móttökur og hlökkum til áframhaldandi samstarfs til að efla sjálfbærni fyrirtækja á Norðurlandi!

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt

Í ár fögnum við 25 ára afmæli UN Global Compact, stærsta sjálfbærniverkefnis heims á vegum Sameinuðu þjóðanna og stofnun félagsins á Íslandi. Viðburðurinn markar bæði tímamót og tækifæri þar sem hann hann endurspeglar árangur síðustu ára og kveikir nýjar hugmyndir um framtíð íslensks atvinnulífs í takt við heimsmarkmið






