Fánadagur Heimsmarkmiðanna 25. september 2026

Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 15. september 2026

Heimsmarkmiðin kalla á okkur öll - 25. september 2026

SKRÁ ÞÁTTTÖKU Í FÁNADEGI HEIMSMARKMIÐANNA 2026


Aðeins fjögur ár eru nú til stefnu til að ná heimsmarkmiðunum fyrir árið 2030. Samkvæmt nýjustu framvinduskýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem kom út í júlí 2026, eru aðeins 36% markmiðanna á réttri leið. Betur má ef duga skal og er fánadagurinn tilvalið tækifæri til að minna á að enn er verk að vinna, um leið og hann sýnir samstöðu með heimsmarkmiðunum.
(UN SDG Report 2026).

Flöggum 25. september 2026
Fánadagur Heimsmarkmiðanna er tækifæri til að minna okkur á að hvert einasta framtak skiptir máli. Með því að flagga fánanum sýnum við vilja til að vera hluti af lausninni, hvort sem við erum fyrirtæki, skóli eða stofnun. Með því að flagga fána Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna erum við að sýna samstöðu, vekja umræðu og hvetja til nýrra hugmynda sem styrkja vegferðina að betri heimi fyrir öll.



Hverjir geta tekið þátt?

Fyrirtæki, stofnanir, skólar, samtök og sveitarfélög sem eru þátttakendur í UN Global Compact og/eða hafa hafið innleiðingu á heimsmarkmiðum í rekstur sinn geta tekið þátt í framtakinu. Vinsamlega skráðu þátttöku hér. Athugið einnig er hægt að taka þátt rafrænt (á samfélagsmiðlum).


Leiðbeiningar fyrir þátttöku

Þegar þátttaka hefur verið skráð fær tengiliður sendar leiðbeiningar fyrir fánadaginn, merkingar fyrir samfélagsmiðla og tillögur að færslum fyrir heimasíður/samfélagsmiðla sem hægt er að útfæra með eigin sniði.


Þar sem fánadagurinn er samstillt framtak, þá biðjum við ykkur um að fylgja sérstaklega leiðarvísinum þegar kemur að merkingum fyrir samfélagsmiðla. Endilega takið myndir og myndbönd af fánanum með starfsfólki/forstjóra og deilið á ykkar miðlum.


Panta fána

Til að lágmarka kolefnisfótspor eru fánarnir prentaðir á Íslandi. Fáninn kostar 22.500 kr. stk. og er sendingarkostnaður innifalinn í verðinu.

Stærð fána er 150x100cm og passar á 6m fánastöng með krækju að ofan og neðan. Texti er á íslensku.
SKRÁ ÞÁTTTÖKU OG PANTA FÁNA


Deildu þátttökunni

Þann 25. september n.k. eru þátttakendur hvattir til að deila þátttöku sinni í fánadeginum á eigin miðlum. Leiðbeiningar (e. toolkit) með tillögum að texta, #merkingum, myndefni o.fl. verða sendar þegar þátttaka hefur verið staðfest.


Um framtakið

United Nations Global Compact hefur frá árinu 2019 staðið fyrir fánadegi Heimsmarkmiðanna. Vinsældir þessa framtaks hafa farið ört vaxandi um allan heim og sífellt fleiri flagga fána fánanum árlega. UN Global Compact á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa nú í fjórða sinn, saman að deginum hér á landi.


Fánadagur Heimsmarkmiðanna er frábært tækifæri til að vekja athygli og skapa umræðu um það sem þátttakendur eru að gera til að vinna markvisst að markmiðunum. 

 

  •  Eru sjálfbærnifrumkvöðlar í fyrirtækinu? Fánadagurinn veitir tækifæri til að miðla sögum og viðburðum á heimasíðu eða samfélagsmiðlum.

  • Hvetja má starfsfólk til að vinna í einkalífi jafnt sem í starfi að heimsmarkmiðunum. Fræðslan Good Life Goals er einn vettvangur til að hefja þessa vegferð.

  • Kynna má fyrir hagaðilum, þ.m.t. fyrirtækjum í virðiskeðju, viðskiptavinum, neytendum og nærsamfélaginu, aðgerðir í tengslum við heimsmarkmiðin sem þátttakandi vinnur út frá.

  • Hvatning til frumkvöðla og ungu kynslóðarinnar um að móta nýjar leiðir til að ná fram heimsmarkmiðunum.

 

Merki Íslenskra staðla og UN Global Compact á Íslandi á mynd af svartri klettaströnd ásamt hring heimsmarkmiðanna.
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 19. október 2026
Hvernig verða sjálfbærnimarkmið að mælanlegum árangri? Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember. Tími: Kl. 10:00 að íslenskum tíma.
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 13. október 2026
Hvar stendur þitt fyrirtæki þegar kemur að mannréttindum í virðiskeðjunni? Dagsetning: Mánudagurinn 2. nóvember. Tími: Kl. 11:00 að íslenskum tíma.
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram þriðjudaginn 24. nóvember á vegum UN Global Compact Academy. Lotan ber yfirskriftina The Clean Energy Advantage: How a Just Transition Can Ensure Business Resilience. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Í þessari lotu er sjónum beint að orkuskiptunum: hvað drífur þau áfram, hvað hindrar útbreiðslu hreinnar orku og hvernig fyrirtæki geta nýtt fjárfestingar, kaupmátt og samtakamátt til að auka hlut endurnýjanlegrar orku og skapa verðmæti til lengri tíma. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember Tími: Kl. 14:00–15:00 að íslenskum tíma. Tungumál: Enska, með þýðingu á spænsku, portúgölsku og frönsku. Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 6. október 2026
Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility er yfirskrift vefnámskeiðs sem haldið verður á vegum UN Global Compact Deutschland miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt , evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Bjorgvinsson • 5. október 2026
Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.  Skráning
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna.  Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 24. september 2026
Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 11. september 2026
Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026
Fleiri færslur