Takk fyrir árið!

Audur Gudmundsdóttir • 30. desember 2024
Árið 2024 var farsælt og viðburðaríkt hjá UN Global Compact á Íslandi. Það fjölgar áfram í hópi íslenskra fyrirtækja sem hafa ákveðið að innleiða tíu meginmarkmið UN Global Compact í rekstur sinn og við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin í hópinn. 

Íslensk fyrirtæki hafa jafnt og þétt gerst þátttakendur í UN Global Compact frá árinu 2006 og þannig ákveðið að setja sjálfbærni í forgang í sínum rekstri. Við erum afar stolt af þessum fyrirtækjum sem eru leiðandi og mikilvæg fyrirmynd í íslensku atvinnulífi. Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir virka þátttöku í starfi UN Global Compact á árinu, ýmist með því að hafa tekið þátt í viðburðum eða með því að hafa sótt sér þekkingu. 
 
Það þarf samhent átak til að breyta heiminum til hins betra!

Árið fór vel vel af stað. Í janúar og febrúar stóð þátttakendum til boða að sækja fjölmörg áhugaverð vefnámskeið sem er hluti af auknu samstarfi UN Global Compact staðarneta út um allan heim.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn í mars og af því tilefni var boðið upp á fjölbreytta fræðslu til að stuðla að jafnrétti í atvinnulífinu á vegum #UNGCAcademy undir þemanu Invest in women: Accelerate progress. Hápunkturinn var árlegur og sameiginlegur viðburður meðal kauphalla á heimsvísu. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og þáverandi forstjóri The B Team og Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs hjá Arion banka hringdu bjöllu fyrir jafnrétti kynjanna. Nasdaq Iceland, UN Global Compact á Íslandi, FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu, og UN Women Ísland stóðu saman að viðburðinum hér á landi. 

Í apríl stóðum við fyrir tveimur áhugaverðum fræðslufundum þar sem athyglinni var beint að sjálfbærnilöggjöf. Fundurinn Mannréttindi í viðskiptum – hver eru lágmarksviðmið EU taxonomy um mannréttindi? var haldinn í samvinnu við KPMG og var gríðarlega vel sóttur. Þá var haldinn veffundur í samstarfi við Rambøll um CSRD þar sem farið var yfir reynslu og lærdóm af innleiðingu CSRD í fyrirtækjarekstur. 

Þá fóru einnig fram fundir UN Global Compact og Evrópusambandsins í Brussel þar sem mikilvægt samtal fór fram um stöðu evrópskra fyrirtækja þegar kemur að samkeppnishæfni og mótun nýrrar sjálfbærnilöggjafar. Augljós tenging er milli regluverks Evrópusambandssins tíu meginmarkmið UN Global Compact um ábyrga viðskiptahætti, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna auk Græna sáttmála Evrópusambandsins og Parísarsamkomulagsins. Það er því ljóst að fyrirtæki í UN Global Compact eru í góðri stöðu þegar kemur að nýju regluverki þar sem þau hafa þegar innleitt skýran ramma í kringum sjálfbærnimál í sínum rekstri auk þess sem þau hafa aðgang að stuðningi í gegnum fræðslu og tengslanet samtakanna.

Í maí héldum við vel heppnaða vinnustofu í samstarfi við Rambøll sem var stýrt af Rakel Guðmundsdóttir. Á vinnustofunni var farið ítarlega yfir kröfur sjálfbærniupplýsingagjafar CSRD og tvöfaldrar mikilvægisgreiningar auk ESRS staðla. Þátttakendur spreyttu sig m.a. á því að framkvæma tvöfalda mikilvægisgreiningu auk þess sem líflegar umræður sköpuðust.

TNFD veffundaröð UN Global Compact í Danmörku fór af stað og á fyrsta fundinum hélt Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans, erindi um hvernig bankinn hefur nálgast kröfur í sjálfbærniupplýsingagjöf þegar kemur líffræðilegum fjölbreytileika og náttúru. Fundurinn var vel sóttur af öðrum staðarnetum UN Global Compact og við erum mjög stolt af því að íslenskt fyrirtæki deili reynslu og þekkingu á þessum vettvangi.

Í júní fór fram fyrsti fundur í hraðlinum Climate Ambition Accelerator og hófst námskeiðið formlega í ágúst. Líkt og í fyrra, er um samvinnuverkefni norrænu staðarneta UN Global Compact að ræða. Í hraðlinum fá þátttakendur þjálfun í að setja loftslagsmarkmið í samræmi við aðferðafræði Science Based Targets, tilkynna um losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt GHG bókuninni og innleiðingu aðferða til að draga úr losun. Þrjú íslensk fyrirtæki tóku þátt og luku hraðlinum í byrjun desember.

Skrifstofan okkar fékk mikilvægan liðsauka í september þegar Friðsemd Sveinsdóttir hóf störf. Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun fór fram 25. september og flögguðu fyrirtæki og stofnanir fánanum til að minna á mikilvægi markmiðanna.
UN Global Compact tók virkan þátt í Loftslagsviku Sameinuðu þjóðanna sem fer fram árlega. Norrænu staðarnetin stóðu fyrir sameiginlegum og vel heppnuðum viðburðum þar sem hæst ber að nefna hringborðsumræður forstjóra (Nordic CEO Roundrables). Við fjölluðum um jafnrétti og inngildingu í íslensku samfélagi á veffundinum Samfélagslega FRÁBÆR sem haldinn var í samvinnu við Kveikju, sem er hugmyndasmiðja sem vinnur í að skapa nýjar, jafnréttismiðaðar lausnir sem miða að því að bæta starfsemi fyrirtækja og stofnana til að styrkja samfélagið. 

Í október fór fram málstofa í samstarfi við Háskólann á Akureyri um aðlögun rekstrar að markmiðum um sjálfbæra þróun. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við HA og að efla sjálfbærni á Norðurlandi.

Mannréttindamálin hafa átt hug okkar allann í nóvember og hvernig við getum stutt fyrirtæki í að vinna markvisst að því að koma í veg fyrir mannréttindabrot í eigin starfsemi og í gegnum virðiskeðjuna. Haldinn var kynningarfundur á Human rights and Business Accelerator sem hefst í febrúar 2025. Sjálfbærni snýst um að taka mið af réttindum framtíðarkynslóða og því ættu fyrirtæki alltaf að setja réttindi barna í forgang. Samstarf UN Global Compact á Íslandi og UNICEF á Íslandi undirstrikar þetta og stóðum félögin fyrir sameiginlegum hádegisverðarfundi þar sem fjallað var um áhættur tengdar barnavinnu í virðiskeðjunni, ábyrgð fyrirtækja og forvarnir. Fundurinn var afar vel heppnaður og hafa íslensk fyrirtæki alla burði til að vera framúrskarandi þegar kemur að því að setja réttindi barna í forgang.

Allir íslenskir þátttakendur hafa skilað framvinduskýrslu (Communication on Progress) UN Global Compact nú í lok desember. Íslensk fyrirtæki skara svo sannarlega frammúr en um er að ræða besta árangur á heimsvísu. Framvinduskýrslan er mikilvægur liður í þátttöku í UN Global Compact og því að miðla grunnupplýsingum um stöðu sjálfbærnimála (ESG) á áreiðanlegan og gagnsæjan hátt. Vel gert!

Kæru þátttakendur, ráðgjafaráð og samstarfsaðilar, gleðilegt og sjálfbært nýtt ár. Við hlökkum til samstarfsins 2025!
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 13. október 2026
Hvar stendur þitt fyrirtæki þegar kemur að mannréttindum í virðiskeðjunni? Dagsetning: Mánudagurinn 2. nóvember. Tími: Kl. 11:00 að íslenskum tíma.
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 7. október 2026
Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram þriðjudaginn 24. nóvember á vegum UN Global Compact Academy. Lotan ber yfirskriftina The Clean Energy Advantage: How a Just Transition Can Ensure Business Resilience. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Í þessari lotu er sjónum beint að orkuskiptunum: hvað drífur þau áfram, hvað hindrar útbreiðslu hreinnar orku og hvernig fyrirtæki geta nýtt fjárfestingar, kaupmátt og samtakamátt til að auka hlut endurnýjanlegrar orku og skapa verðmæti til lengri tíma. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember Tími: Kl. 14:00–15:00 að íslenskum tíma. Tungumál: Enska, með þýðingu á spænsku, portúgölsku og frönsku. Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Björgvinsson • 6. október 2026
Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility er yfirskrift vefnámskeiðs sem haldið verður á vegum UN Global Compact Deutschland miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt , evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Eftir Ingvar Orri Bjorgvinsson • 5. október 2026
Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu.  Skráning
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 5. október 2026
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna.  Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 24. september 2026
Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 15. september 2026
Heimsmarkmiðin kalla á okkur öll - 25. september 2026
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir • 11. september 2026
Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026
Fleiri færslur