Sjálfbærnilöggjöf og Evrópuþingið

Audur Gudmundsdóttir • 3. maí 2024
Hvernig getur United Nations Global Compact aukið samkeppnishæfni fyrirtækja og tryggt áhrif þeirra við mótun nýrrar löggjafar Evrópusambandsins? 

Þetta var meðal annars rætt á nýafstöðnum fundum United Nations Global Compact í Evrópuþinginu í Brussel dagana 17. og 18. apríl s.l. 


Umræðuefni fundanna voru nýjar reglugerðir Evrópusambandsins CSRD, CSDDD, ESRS og aðrar tilskipanir sem lúta að sjálfbærni fyrirtækja. 

Fulltrúar evrópskra staðarneta UN Global Compact tóku þátt auk lykilaðildarfyrirtækja, þingmenn Evrópuþingsins og fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 

  • Það er mikilvægt að missa ekki sjónar á tilgangi Evrópulöggjafar; að samræma upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni. Að fyrirtæki fylgi sambærilegum og gagnsæum viðmiðum, þannig að öll fyrirtæki sitji við sama borð.

  • Löggjöfin hefur ekki einungis gríðarlega mikil áhrif á evrópsk fyrirtæki heldur á fyrirtæki um allan heim í gegnum virðiskeðjuna. UN Global Compact er fulltrúi 25.000 fyfirtækja á heimsvísu, þar af eru 9000 þeirra innan Evrópu og teljast 52% þeirra til lítilla eða meðalstórra fyrirtækja. Samtökin hafa því þýðingarmikið hlutverk þegar kemur að því að styrkja samtal milli fyrirtækja og mótunar Evrópulöggjafar.

  • Ef skoðaður er kjarni regluverks Evrópusambandssins má sjá augljósa tengingu við tíu meginmarkmið UN Global Compact um ábyrga viðskiptahætti, Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna auk Græna sáttmála Evrópusambandsins og Parísarsamkomulagsins.

  • Fyrirtæki í United Nations Global Compact eru í góðri stöðu þegar kemur að nýju regluverki þar sem þau hafa þegar innleitt skýran ramma í kringum sjálfbærnimál í sínum rekstri. Auk þess búa þau yfir þekkingu og hafa aðgang að stuðningi í gegnum fræðslu og tengslanet samtakanna.

Samtökin hafa styrkt viðveru sína í Brussel og verður spennandi að sjá framvindu samstarfsins við Evrópusambandið á komandi mánuðum.
24. mars 2026
Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00
12. mars 2026
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur með vel heppnuðum viðburði sem skapaði vettvang fyrir samtal um jafnrétti í atvinnulífinu.
5. mars 2026
Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.
S
25. febrúar 2026
Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar. Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.
19. febrúar 2026
Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að græna hagkerfið vaxi um allt að tvær billjónir Bandaríkjadala. Fyrirtæki sem vilja taka næsta skref standa því frammi fyrir verulegum tækifærum. Spurningin er einföld: Hverjir ætla að sækja fram á meðan aðrir sitja eftir?
12. febrúar 2026
Handbók UN Global Compact leiðir lítil og meðalstór fyrirtæki í gegnum fjögur hagnýt skref í átt að sjálfbærari rekstri
Jafnrétti vefnámskeið Ísland Austuríki
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir 6. febrúar 2026
Vefnámskeiðið veitir íslenskum fyrirtækjum einstakt tækifæri til að miðla reynslu sinni af því að mæla og sporna gegn kynbundnum launamun og læra af fyrirtækjum sem starfa við annað regluverk og í öðru menningarlegu samhengi.
Fleiri færslur