ALNF í Tokyo 2024

Audur Gudmundsdóttir • 3. maí 2024
Ársfundir staðarneta United Nations Global Compact (UNGC) eru mikilvægur hlekkur í starfi samtakanna á heimsvísu.

Árið 2024 var ársfundurinn haldinn í United Nations University í Tokyo. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, svæðisstjóri UN Global Compact á Íslandi, tók þátt í fundinum, þar sem 150+ fulltrúar Global Compact frá um 80 löndum komu saman. Meginrumræðuefnið var hvernig Global Compact getur stutt enn betur við fyrirtæki til að hraða árangri í sjálfbærni og hvernig megi efla megi samstarf staðarneta í þágu þátttakenda UNGC.

  • Áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki og virðiskeðjuna. Horft verður sérstaklega til þess hvernig þróa megi aðferðir sem styðja við og stuðla að framförum í sjálfbærni til framtíðar.

  • Áhersla á tækifæri gervigreindar. UNGC mun fjárfesta enn frekar á sviði gervigreindar til að miðla og upplýsa um aðferðir til að hraða árangri í sjálfbærni.

  • Stuðningur við fyrirtæki í Evrópu við innleiðingu nýrra regluverka. Framundan er ráðstefna í Brussel þar sem farið verður í kjölinn ofan í evrópskar reglugerðir, þýðingu þeirra og áhrif á fyrirtæki auk þess sem þróun vandaðs stuðningsefnis um löggjöf ESB er í vinnslu.

  • UNGC mun halda áfram að þróa og bæta framvinduskýrslu UNGC (Communication on Progress) til að styðja við gegnsæja upplýsingagjöf fyrirtækja. 

  • Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, hefur lagt áherslu á hlutverk fyrirtækja og Global Compact þegar kemur að Heimsmarkmiðunum. Við tökum þessu alvarlega og munum setja aukinn slagkraft í að hvetja fyrirtæki til að taka þátt í Forward Faster. Við munum leggja áherslu á fræðslu sem snýr að jafnrétti kynjanna, jöfnum lífskjörum, loftslagsaðgerðum, vatnsvörslu og sjálfbærum fjármálum.

  • Við höldum áfram að bjóða upp á bestu mögulegu fræðslu þegar kemur að sjálfbærni í gegnum UN Global Compact Academy og Accelerators fyrir okkar þátttakendur. 

  • Summit of the Future er einn mikilvægasti viðburður Sameinuðu Þjóðanna og þar mun Global Compact taka virkan þátt og standa fyrir viðburðum fyrir þátttakendur sem fá tækifæri til að efla tengslanetið, læra og miðla.
24. mars 2026
Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00
12. mars 2026
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur með vel heppnuðum viðburði sem skapaði vettvang fyrir samtal um jafnrétti í atvinnulífinu.
5. mars 2026
Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.
S
25. febrúar 2026
Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar. Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.
19. febrúar 2026
Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að græna hagkerfið vaxi um allt að tvær billjónir Bandaríkjadala. Fyrirtæki sem vilja taka næsta skref standa því frammi fyrir verulegum tækifærum. Spurningin er einföld: Hverjir ætla að sækja fram á meðan aðrir sitja eftir?
12. febrúar 2026
Handbók UN Global Compact leiðir lítil og meðalstór fyrirtæki í gegnum fjögur hagnýt skref í átt að sjálfbærari rekstri
Jafnrétti vefnámskeið Ísland Austuríki
Eftir Audur Hrefna Gudmundsdóttir 6. febrúar 2026
Vefnámskeiðið veitir íslenskum fyrirtækjum einstakt tækifæri til að miðla reynslu sinni af því að mæla og sporna gegn kynbundnum launamun og læra af fyrirtækjum sem starfa við annað regluverk og í öðru menningarlegu samhengi.
Fleiri færslur