Business and Human Rights Talks – opin vefnámskeið
UN Global Compact Network á Norðurlöndunum standa fyrir opinni vefnámskeiðaröð um fyrirtæki og mannréttindi, í tilefni af 15 ára afmæli leiðbeinandi meginreglna Sameinuðu þjóðanna um fyrirtæki og mannréttindi (UNGP). Þrátt fyrir 15 ár af meginreglunum glíma mörg fyrirtæki enn við að koma þeim í framkvæmd og er það viðfangsefni raðarinnar.
Næsti þáttur: Decent Work and Stakeholder Engagement
Hvernig geta fyrirtæki virkjað starfsfólk og hagaðilasamráð þannig að það byggi upp traust og leiði til betri ákvarðana? Fjallað verður m.a. um þátttöku starfsfólks og hagaðila, inngildingu sem hluta af mannréttindaáreiðanleikakönnun (human rights due diligence) og hagnýtar áskoranir og góðar starfsvenjur í norrænu samhengi.
Námskeiðið fer fram á Zoom þann 10. september 2026, kl. 11:00–12:15 að íslenskum tíma. Þátttaka er gjaldfrjáls og upptaka aðgengileg eftir að námskeiði líkur fyrir skráða.
Skráning: globalcompact.fi/human-rights-talks
Dagskrá raðarinnar í heild: globalcompact.se/business-human-rights-talks
Framundan í röðinni: 19. nóvember – áhætta og tækifæri gervigreindar út frá mannréttindum.









