Heilindi og spillingarvarnir: G-ið í ESG
Vefnámskeið UN Global Compact og UNODC – 16. september 2026
G-ið í ESG fær oft minnstu athyglina en heldur samt hinum tveimur uppi. Spillingarvarnir og siðferði eru órjúfanlegur hluti sjálfbærnistarfs og forsenda þess að það standist skoðun.
UN Global Compact og Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot (UNODC) standa fyrir vefnámskeiði um hvernig fyrirtæki geta fléttað hvort tveggja inn í stjórnarhætti, áhættustýringu og daglegar ákvarðanir – í stað þess að regluvarsla sé afmarkað verkefni á einu borði. Námskeiðið heitir An Integrated Approach: Enhancing Compliance Through a Transformational Governance Lens
Námskeiðið byggir á nýrri útgáfu leiðarvísis stofnananna, An Anti-Corruption Ethics and Compliance Programme for Business: A Practical Guide (2. útgáfa, 2026), sem setur nýtt viðmið Sameinuðu þjóðanna um heilindi í rekstri.
Meðal umfjöllunarefna:
- Samþætt nálgun á regluvörslu í stað einangraðrar einingar
- Breyttar væntingar hagaðila og aukin krafa regluverks
- Áhættustýring í flóknu rekstrarumhverfi
- Heilindi sem forsenda sjálfbærni og langtímarekstrarhæfis
Á erindi við starfsfólk á sviði lögfræði, regluvörslu, áhættustýringar, innkaupa, innri endurskoðunar og sjálfbærni. Sérstaklega hjá fyrirtækjum með alþjóðlega starfsemi, umfangsmiklar birgjakeðjur eða aðkomu að opinberum innkaupum.
Námskeiðið fer fram þann 16. september 2026, kl. 14:00–15:30 að íslenskum tíma .
Tungumál: Enska (þýðing í boði á spænsku, portúgölsku og frönsku)
Upptaka: Í boði fyrir skráða
Skráning: info.unglobalcompact.org/anticorruption-s1
Leiðarvísirinn í heild sinni: unglobalcompact.org/library/6344










