Kynningarfundur um Viðskipta- og mannréttindahraðal UN Global Compact
Hvar stendur þitt fyrirtæki þegar kemur að mannréttindum í virðiskeðjunni?
Mánudaginn 2. nóvember kl. 11:00 verður haldinn rafrænn kynningarfundur um Viðskipta- og mannréttindahraðalinn (Business & Human Rights Accelerator).
Kröfur til fyrirtækja um forvarnir og aðgerðir í þágu mannréttinda og vinnuréttinda fara sífellt vaxandi. Til að styðja við fyrirtæki í þessari vegferð höfum við opnað fyrir skráningu í Viðskipta- og mannréttindahraðal UN Global Compact sem hefst í febrúar 2027.
Hraðallinn er nú haldinn í fimmta sinn og verður nú enn hnitmiðari en áður. Dagskráin tekur nú þrjá mánuði í stað sex áður, þar sem rík áhersla er lögð á hagnýta vinnu og jafningjafræðslu. Markmið námskeiðsins er að hjálpa fyrirtækjum að:
- Öðlast víðtækan skilning á mannréttindum.
- Framkvæma áreiðanleikakönnun (e. due diligence) á eigin virðiskeðju.
- Útbúa raunhæfa aðgerðaáætlun.
Um kynningarfundinn: Á veffundinum fyrir íslensk fyrirtæki þann 2. nóvember verður farið ítarlega yfir skipulag og efnistök hraðalsins. Einnig verður farið yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar, svo sem tímalínu, skuldbindingu sem fylgir þátttöku og þátttökukröfur.
Hraðallinn er aðeins opinn fyrir aðildarfyrirtæki í UN Global Compact og er þeim að kostnaðarlausu.
Skráning á kynningarfundinn 2. nóvember.
Nánari upplýsingar um hraðalinn.









