Samfélagslega FRÁBÆR
Audur Gudmundsdóttir • 22. ágúst 2024
Fundurinn er í beinu streymi og opinn öllum áhugasömum.
Dagsetning: Fimmtudagur, 19. september
Tími: kl.
11:00-12:00
Ráðgjafar
Kveikju, þær Heiður Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur og Herdís Sólborg Haraldsdóttir, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í jafnréttismálum, ræða mikilvægi þess að ná betur utan um félagslega hluta sjálfbærni. Meðal annars í samhengi við alþjóðlegar kröfur og þann fjárhagslegan ábata sem fyrirtæki geta haft af því að sinna þessum málum vel.
Umhverfisþátturinn hefur verið ríkjandi í innlendri umræðu um sjálfbærni en nú verður skoðað betur hvaða félagslegu þátta er nauðsynlegt að líta til. Nýsamþykkt reglugerð Evrópusambandsins (CSDDD) gerir auknar kröfur til fyrirtækja að greina og koma í veg fyrir neikvæð samfélagsleg áhrif af sinni starfsemi. Íslensk fyrirtæki sem eru hluti af virðiskeðju í alþjóðlegum viðskiptum, þurfa að hlíta þeim kröfum.
Á fundinum verður fjallað um mismunandi viðmið og kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja varðandi samfélagslega sjálfbærni, eins og ESG og CSDDD, með sérstakri áherslu á jafnrétti og inngildingu í íslensku samfélagi. Einnig verður fjallað um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja sem standa sig vel á sviði sjálfbærni og leggja áherslu á jafnrétti og inngildingu. Bæði hvað varðar áhættustýringu, ávöxtun og mögulega viðskiptahagsmuni í tengslum við nýja Evrópureglugerð.


Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.






