Fánadagur Heimsmarkmiðanna 2024
Audur Gudmundsdóttir • 2. júlí 2024
25. september 2024
Hverjir geta tekið þátt?
Fyrirtæki, stofnanir, skólar, samtök og sveitarfélög sem eru þátttakendur í UN Global Compact og/eða hafa hafið innleiðingu á heimsmarkmiðum í rekstur sinn geta tekið þátt í framtakinu. Vinsamlega skráðu þátttöku
hér. Athugið einnig er hægt að taka þátt rafrænt (á samfélagsmiðlum).
Leiðbeiningar fyrir þátttöku
Hér má finna upplýsingar til undirbúnings fyrir fánadaginn, merkingar fyrir samfélagsmiðla og tillögur að færslum fyrir heimasíður/samfélagsmiðla sem hægt er að útfæra með eigin sniði. Hér má finna myndefni til að taka þátt rafrænt.
Hér má finna upplýsingar til undirbúnings fyrir fánadaginn, merkingar fyrir samfélagsmiðla og tillögur að færslum fyrir heimasíður/samfélagsmiðla sem hægt er að útfæra með eigin sniði. Hér má finna myndefni til að taka þátt rafrænt.
Þar sem fánadagurinn er samstillt framtak, þá biðjum við ykkur um að fylgja sérstaklega leiðarvísinum þegar kemur að merkingum fyrir samfélagsmiðla. Endilega takið myndir og myndbönd af fánanum með starfsfólki/forstjóra og deilið á ykkar miðlum.
Panta fána
Til að lágmarka kolefnisfótspor eru fánarnir prentaðir á Íslandi. Fáninn kostar 22.500 kr. stk. og er sendingarkostnaður innifalinn í verðinu.
Stærð fána er 150x100cm og passar á 6m fánastöng með krækju að ofan og neðan. Texti er á íslensku.
Deildu þátttökunni
Þann 25. september n.k. eru þátttakendur hvattir til að deila þátttöku sinni í fánadegi heimsmarkmiðanna á eigin miðlum. Leiðbeiningar (e. toolkit) með tillögum að texta, #merkingum, myndefni o.fl. verða sendar þegar þátttaka hefur verið staðfest.
Um framtakið
United Nations Global Compact hefur frá árinu 2019 staðið fyrir fánadegi Heimsmarkmiðanna. Vinsældir þessa framtaks hafa farið ört vaxandi um allan heim og sífellt fleiri flagga fána fánanum árlega. Við erum meira en hálfnuð á vegferð okkar til að ná heimsmarkmiðunum og ljóst að aukinn slagkraft þarf í aðgerðir þjóða þvert á landamæri.
UN Global Compact á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa að deginum hér á landi.
Fánadagur Heimsmarkmiðanna er frábært tækifæri til að vekja athygli og skapa umræðu um það sem þátttakendur eru að gera til að vinna markvisst að markmiðunum.
- Eru sjálfbærnifrumkvöðlar í fyrirtækinu? Fánadagurinn veitir tækifæri til að miðla sögum og viðburðum á heimasíðu eða samfélagsmiðlum.
- Hvetja má starfsfólk til að vinna í einkalífi jafnt sem í starfi að heimsmarkmiðunum. Fræðslan
Good Life Goals er einn vettvangur til að hefja þessa vegferð.
- Kynna má fyrir hagaðilum, þ.m.t. fyrirtækjum í virðiskeðju, viðskiptavinum, neytendum og nærsamfélaginu, aðgerðir í tenglsum við heimsmarkmiðin sem þátttakandi vinnur út frá.
- Hvatning til frumkvöðla og ungu kynslóðarinnar um að móta nýjar leiðir til að ná fram heimsmarkmiðunum.

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.






