Halló! Hvaða bakslag?
Audur Gudmundsdóttir • 22. desember 2025
UN Women á Íslandi og UN Global Compact Ísland bjóða upp á morgunverðarfund þar sem við tökum púlsinn á jafnréttismálum í atvinnulífinu. Fundurinn fer fram með Barbershop sniði*
þar sem allir taka virkan þátt í umræðunni. Fundurinn fer fram þann
13. janúar 2026 frá kl. 8:30-10:30 á Hótel Berjaya Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52 í Reykjavík.
Dagskrá:
Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri UN Women á Íslandi, fjalla um mannréttindi, kröfur til fyrirtækja og stöðu mála í alþjóðlegu samhengi. Að umræðum loknum mun Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu ávarpa fundinn.
Vinsamlega skráðu þátttöku svo við getum tekið sem best á móti þér!
*Barbershop samtölin eiga rætur að rekja til frumkvæðis íslenskra stjórnvalda í samstarfi við UN Women á Íslandi. Þau byggja á hugmyndinni um rakarastofuna sem vettvang þar sem fólk hittist, skiptist á skoðunum í öruggu rými og talar saman um málefni sem skipta máli án formfestu og á jafningjagrundvelli.
Fundurinn fer fram þann

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt