Áramótakveðja 2025
Audur Gudmundsdóttir • 29. desember 2025
Á árinu 2025 lögðum við ríka áherslu á fræðslu, virkni og norrænt samstarf enda festir sjálfbærni sig aðeins í sessi innan fyrirtækja þegar allt starfsfólk hefur tækifæri til að taka þátt og hún verður hluti af daglegum ákvörðunum og menningu fyrirtækja. Stjórn félagsins
hefur allt árið unnið afar öflugt og metnaðarfullt starf og við erum rétt að byrja. Við færum öllum þátttakendum okkar og samstarfsaðilum einlægar þakkir fyrir virka þátttöku, áhuga og samtöl á árinu.
Árið hófst af krafti
í janúar með vel sóttum stofnfundi félagsins þar sem fyrsta stjórn samtakanna var kjörin. Við tókum einnig þátt í vel heppnuðum hliðarviðburði í tengslum við janúarráðstefnu Festu þar sem mannréttindi í virðiskeðjum voru í brennidepli og fjallað var um stöðuna út frá ólíkum sjónarhornum. Við höfðum einnig ánægju af því að taka á móti samstarfsfólki okkar frá UN Global Compact Network Nepal sem heimsótti Ísland og vakti athygli á ábyrgð fyrirtækja og neytenda í aðfangakeðjum. Þá barst öflugur stuðningur á skrifstofuna þegar við fengum til okkar starfsnema í byrjun ársins.
Í
febrúar hófst Viðskipta- og mannréttindahraðallinn þar sem íslensk fyrirtæki unnu markvisst að því að greina áhættu, efla þekkingu og móta raunhæfar aðgerðaáætlanir í þágu mannréttinda. Hópurinn hittist reglulega næstu mánuði í staðlotum þar sem gestafyrirlesarar og sérfræðingar miðluðu reynslu og þátttakendur unnu þétt saman.
Marsmánuður var, líkt og fyrri ár, helgaður jafnrétti og fræðslu. Við tókum þátt í að hringja inn kauphallarbjöllunni í þágu jafnréttis í samstarfi við Nasdaq, UN Women á Íslandi og FKA. Jafnframt var sjónum beint að norrænu samstarfi með kynningu á Nordic Nature Starter Pack, nýju verkefni sem styður fyrirtæki í fyrstu skrefum í stefnumótandi vinnu á sviði náttúruverndar auk þess sem ný og uppfærð rafræn akademía UN Global Compact var kynnt til leiks.
Í
apríl tókum við þátt í One Global Compact Forum í Cape Town þar sem rætt var um nýja stefnu samtakanna og mikilvægi þess að halda fókus á kjarnaábyrgð, mannréttindi og sjálfbærni á tímum þar sem sjálfbærni mætir vaxandi áskorunum. Styrkleiki UN Global Compact liggur í skýrum grunngildum sáttmálans þegar heimurinn tekur breytingum og gildum er ögrað.
Í
maí
stóðum við fyrir opnum morgunfundi í samstarfi við Nordic Sustainability þar sem sjónum var beint að sjálfbærni, regluverki ESB og stöðunni á Íslandi í kjölfar Omnibus-tillögunnar. Umræðurnar undirstrikuðu að sjálfbærni snýst ekki eingöngu um að uppfylla kröfur heldur um forystu, gildi og hugrekki til að hefja vegferðina. Sjálfbærnivinna er langtímaverkefni sem byggir á forgangsröðun og virkri þátttöku innan fyrirtækja.
Í
júní fór fram Nordic Meeting 2025 í Helsinki þar sem yfir 200 þátttakendur frá norrænum fyrirtækjum komu saman. Þar var íslenska félagið formlega boðið velkomið í norrænt samstarf. Réttlát umbreyting, áreiðanleikakönnun, haghafar og samþætting sjálfbærni í daglegan rekstur voru meðal lykilþema fundarins. Fundurinn staðfesti mikilvægi þess að læra hvert af öðru og vinna saman þvert á landamæri.
Ágúst
og
september einkenndust af áherslu á loftslagsaðgerðir, jafnræði og mannréttindi. Ný fræðsluverkefni stóðu þátttakendum til boða, þar á meðal SBTi Starter Pack og Nordic Programme on Non-Discrimination og var ánægjulegt að sjá áhuga íslenskra fyrirtækja. Þá lauk einnig Viðskipta- og mannréttindahraðlinum og hafa þátttökufyrirtækin nú byggt upp skýrar og metnaðarfullar aðgerðaáætlanir sem styðja við raunverulegar umbætur í þágu mannréttinda.
Í
október fengu þátttakendur tækifæri til að taka þátt í Nordic Integrity Talks, viðburðaröð sem fjallar um hvernig sporna megi gegn spillingu í alþjóðlegu og áhættusömu viðskiptaumhverfi. Þrátt fyrir lága spillingu á Norðurlöndum er þetta samtal mikilvægt, ekki síst í samhengi við ábyrgð fyrirtækja sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum og mikilvægi þekkingar, forvarna og samvinnu.
Árið náði ákveðnum hápunkti í nóvember þegar við héldum viðburð í Hvalasafninu og fögnuðum 25 ára afmæli samtakanna og formlegri stofnun félagsins. Þar fengum við til okkar frábæra gestafyrirlesara þau Andreas Rasche og Stine Lise Hattestad Bratsberg, auk öflugra leiðtoga úr íslensku atvinnulífi sem deildu sinni sýn á sjálfbærnimál fyrirtækja á Íslandi. Viðburðurinn var fyrst og fremst vettvangur til samveru og samtals þar umræðan fór um víðan völl m.a. leiðtogahlutverk fyrirtækja í óstöðugum heimi, mikilvægi gilda, jafnvægi milli hagnaðar og ábyrgðar og hvernig sjálfbærni, nýsköpun og tækni geta skapað bæði tækifæri og aukna seiglu til framtíðar.
Í
desember höfum við haldið áfram að styrkja grunn og innviði félagsins með það að markmiði að styðja við áframhaldandi vöxt, faglegt starf og öfluga þjónustu við þátttakendur á nýju ári.
Árið 2025 var bæði viðburðaríkt og markaði stór tímamót í starfsemi United Nations Global Compact á Íslandi. Hæst ber að nefna að það eru 25 ár síðan sáttmáli Sameinuðu þjóðanna, Global Compact, um ábyrga viðskiptahætti varð til. Sáttmálinn, sem byggir á tíu meginmarkmiðum, hafði það að markmiði að virkja fyrirtæki um allan heim til að taka þátt í lausn alþjóðlegra áskorana í þágu betri heims. Með Global Compact varð til sameiginlegur rammi fyrir fyrirtæki til að samræma stefnu og starfsemi við alþjóðleg viðmið og gildi Sameinuðu þjóðanna. Í síbreytilegum heimi má segja að meginmarkmið sáttmálans séu kjarni sjálfbærni eins og við þekkjum hugtakið í dag. Þau standast tímans tönn og eru gildi sem fyrirtæki, óháð stærð eða starfsemi, geta tengt við.
Íslensk fyrirtæki hafa tekið þátt í Global Compact allt frá árinu 2006 og á þeim grunni hefur myndast öflugur hópur sem hefur kallað eftir auknu samstarfi, sameiginlegum vettvangi fyrir fræðslu og umræðu og sterkari tengingu við alþjóðlegt starf samtakanna. Stofnun íslenska félagsins er því eðlilegt framhald þessarar þróunar og staðfestir metnað íslensks atvinnulífs til að vera virkur þátttakandi í ábyrgum og sjálfbærum viðskiptum. Í dag hefur íslenska félagið fest sig í sessi sem vettvangur þar sem áhuginn heldur áfram að aukast, þátttakendum fjölgar og sífellt fleiri fyrirtæki vilja efla þekkingu sína og innleiða ábyrg vinnubrögð í sameiginlegu samtali.
Kæru þátttakendur og samstarfsaðilar, gleðilegt og farsælt nýtt ár. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs árið 2026!
Árið hófst af krafti
í janúar með vel sóttum stofnfundi félagsins þar sem fyrsta stjórn samtakanna var kjörin. Við tókum einnig þátt í vel heppnuðum hliðarviðburði í tengslum við janúarráðstefnu Festu þar sem mannréttindi í virðiskeðjum voru í brennidepli og fjallað var um stöðuna út frá ólíkum sjónarhornum. Við höfðum einnig ánægju af því að taka á móti samstarfsfólki okkar frá UN Global Compact Network Nepal sem heimsótti Ísland og vakti athygli á ábyrgð fyrirtækja og neytenda í aðfangakeðjum. Þá barst öflugur stuðningur á skrifstofuna þegar við fengum til okkar starfsnema í byrjun ársins.
Í
febrúar hófst Viðskipta- og mannréttindahraðallinn þar sem íslensk fyrirtæki unnu markvisst að því að greina áhættu, efla þekkingu og móta raunhæfar aðgerðaáætlanir í þágu mannréttinda. Hópurinn hittist reglulega næstu mánuði í staðlotum þar sem gestafyrirlesarar og sérfræðingar miðluðu reynslu og þátttakendur unnu þétt saman.
Marsmánuður var, líkt og fyrri ár, helgaður jafnrétti og fræðslu. Við tókum þátt í að hringja inn kauphallarbjöllunni í þágu jafnréttis í samstarfi við Nasdaq, UN Women á Íslandi og FKA. Jafnframt var sjónum beint að norrænu samstarfi með kynningu á Nordic Nature Starter Pack, nýju verkefni sem styður fyrirtæki í fyrstu skrefum í stefnumótandi vinnu á sviði náttúruverndar auk þess sem ný og uppfærð rafræn akademía UN Global Compact var kynnt til leiks.
Í
apríl tókum við þátt í One Global Compact Forum í Cape Town þar sem rætt var um nýja stefnu samtakanna og mikilvægi þess að halda fókus á kjarnaábyrgð, mannréttindi og sjálfbærni á tímum þar sem sjálfbærni mætir vaxandi áskorunum. Styrkleiki UN Global Compact liggur í skýrum grunngildum sáttmálans þegar heimurinn tekur breytingum og gildum er ögrað.
Í
maí
stóðum við fyrir opnum morgunfundi í samstarfi við Nordic Sustainability þar sem sjónum var beint að sjálfbærni, regluverki ESB og stöðunni á Íslandi í kjölfar Omnibus-tillögunnar. Umræðurnar undirstrikuðu að sjálfbærni snýst ekki eingöngu um að uppfylla kröfur heldur um forystu, gildi og hugrekki til að hefja vegferðina. Sjálfbærnivinna er langtímaverkefni sem byggir á forgangsröðun og virkri þátttöku innan fyrirtækja.
Í júní fór fram Nordic Meeting 2025 í Helsinki þar sem yfir 200 þátttakendur frá norrænum fyrirtækjum komu saman. Þar var íslenska félagið formlega boðið velkomið í norrænt samstarf. Réttlát umbreyting, áreiðanleikakönnun, haghafar og samþætting sjálfbærni í daglegan rekstur voru meðal lykilþema fundarins. Fundurinn staðfesti mikilvægi þess að læra hvert af öðru og vinna saman þvert á landamæri.
Ágúst og september einkenndust af áherslu á loftslagsaðgerðir, jafnræði og mannréttindi. Ný fræðsluverkefni stóðu þátttakendum til boða, þar á meðal SBTi Starter Pack og Nordic Programme on Non-Discrimination og var ánægjulegt að sjá áhuga íslenskra fyrirtækja. Þá lauk einnig Viðskipta- og mannréttindahraðlinum og hafa þátttökufyrirtækin nú byggt upp skýrar og metnaðarfullar aðgerðaáætlanir sem styðja við raunverulegar umbætur í þágu mannréttinda.
Í október fengu þátttakendur tækifæri til að taka þátt í Nordic Integrity Talks, viðburðaröð sem fjallar um hvernig sporna megi gegn spillingu í alþjóðlegu og áhættusömu viðskiptaumhverfi. Þrátt fyrir lága spillingu á Norðurlöndum er þetta samtal mikilvægt, ekki síst í samhengi við ábyrgð fyrirtækja sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum og mikilvægi þekkingar, forvarna og samvinnu.
Árið náði ákveðnum hápunkti í nóvember þegar við héldum viðburð í Hvalasafninu og fögnuðum 25 ára afmæli samtakanna og formlegri stofnun félagsins. Þar fengum við til okkar frábæra gestafyrirlesara þau Andreas Rasche og Stine Lise Hattestad Bratsberg, auk öflugra leiðtoga úr íslensku atvinnulífi sem deildu sinni sýn á sjálfbærnimál fyrirtækja á Íslandi. Viðburðurinn var fyrst og fremst vettvangur til samveru og samtals þar umræðan fór um víðan völl m.a. leiðtogahlutverk fyrirtækja í óstöðugum heimi, mikilvægi gilda, jafnvægi milli hagnaðar og ábyrgðar og hvernig sjálfbærni, nýsköpun og tækni geta skapað bæði tækifæri og aukna seiglu til framtíðar.
Í desember höfum við haldið áfram að styrkja grunn og innviði félagsins með það að markmiði að styðja við áframhaldandi vöxt, faglegt starf og öfluga þjónustu við þátttakendur á nýju ári.
Árið 2025 var bæði viðburðaríkt og markaði stór tímamót í starfsemi United Nations Global Compact á Íslandi. Hæst ber að nefna að það eru 25 ár síðan sáttmáli Sameinuðu þjóðanna, Global Compact, um ábyrga viðskiptahætti varð til. Sáttmálinn, sem byggir á tíu meginmarkmiðum, hafði það að markmiði að virkja fyrirtæki um allan heim til að taka þátt í lausn alþjóðlegra áskorana í þágu betri heims. Með Global Compact varð til sameiginlegur rammi fyrir fyrirtæki til að samræma stefnu og starfsemi við alþjóðleg viðmið og gildi Sameinuðu þjóðanna. Í síbreytilegum heimi má segja að meginmarkmið sáttmálans séu kjarni sjálfbærni eins og við þekkjum hugtakið í dag. Þau standast tímans tönn og eru gildi sem fyrirtæki, óháð stærð eða starfsemi, geta tengt við.
Íslensk fyrirtæki hafa tekið þátt í Global Compact allt frá árinu 2006 og á þeim grunni hefur myndast öflugur hópur sem hefur kallað eftir auknu samstarfi, sameiginlegum vettvangi fyrir fræðslu og umræðu og sterkari tengingu við alþjóðlegt starf samtakanna. Stofnun íslenska félagsins er því eðlilegt framhald þessarar þróunar og staðfestir metnað íslensks atvinnulífs til að vera virkur þátttakandi í ábyrgum og sjálfbærum viðskiptum. Í dag hefur íslenska félagið fest sig í sessi sem vettvangur þar sem áhuginn heldur áfram að aukast, þátttakendum fjölgar og sífellt fleiri fyrirtæki vilja efla þekkingu sína og innleiða ábyrg vinnubrögð í sameiginlegu samtali.
Kæru þátttakendur og samstarfsaðilar, gleðilegt og farsælt nýtt ár. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs árið 2026!

Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram þriðjudaginn 24. nóvember á vegum UN Global Compact Academy. Lotan ber yfirskriftina The Clean Energy Advantage: How a Just Transition Can Ensure Business Resilience. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Í þessari lotu er sjónum beint að orkuskiptunum: hvað drífur þau áfram, hvað hindrar útbreiðslu hreinnar orku og hvernig fyrirtæki geta nýtt fjárfestingar, kaupmátt og samtakamátt til að auka hlut endurnýjanlegrar orku og skapa verðmæti til lengri tíma. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember Tími: Kl. 14:00–15:00 að íslenskum tíma. Tungumál: Enska, með þýðingu á spænsku, portúgölsku og frönsku. Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility er yfirskrift vefnámskeiðs sem haldið verður á vegum UN Global Compact Deutschland miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt , evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.

UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna. Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.

Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.

Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026


