Árlegt fréttabréf framkvæmdastjóra UN Global Compact
5. febrúar 2026
Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu fréttabréfi til þátttakenda.
Árið 2025 markaði tímamót. UN Global Compact fagnaði 25 árum frá stofnun og efldi starfsemi sína, meðal annars með formlegri stofnun félags UN Global Compact á Íslandi. Í bréfinu er stefna UN Global Compact fyrir árin 2026-2030
kynnt en hún miðar að því að veita fyrirtækjum aðgang að fræðslu, hagnýtum verkfærum og einstöku tengslaneti sem gerir þeim kleift að sækja enn frekar fram í þágu sjálfbærs atvinnulífs. Þá mun UN Global Compact halda áfram að afla og varpa ljósi á gögn og reynslusögur sem staðfesta rekstrarleg rök sjálfbærni en þau hafa aldrei verið sterkari en nú.
Sanda kallar eftir endurnýjaðri skuldbindingu við meginmarkmiðin tíu og aukinni þátttöku í starfi UN Global Compact um leið og hún þakkar fyrir gott samstarf. Saman tryggjum við að árin framundan verði sá vendipunktur sem heimurinn þarfnast.
Lestu fréttabréfið
hér

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Í ár fögnum við 25 ára afmæli UN Global Compact, stærsta sjálfbærniverkefnis heims á vegum Sameinuðu þjóðanna og stofnun félagsins á Íslandi. Viðburðurinn markar bæði tímamót og tækifæri þar sem hann hann endurspeglar árangur síðustu ára og kveikir nýjar hugmyndir um framtíð íslensks atvinnulífs í takt við heimsmarkmið