Kynningarfundur: Climate Ambition Accelerator 2024 - 13. mars
Audur Gudmundsdóttir • 3. mars 2024
Tímasetning: 13. mars kl. 9-10 (CET) / 8:00-9:00 GMT (ísl. tíma)
Staðsetning: Webinar
Skráningarfrestur: 11. mars kl. 9 (GMT)
Hefur þú áhuga á að vita meira um Climate Ambition Accelerator? Þá skaltu mæta á þennan kynningarfund.
Fjórða árið í röð munu UN Global Compact í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Íslandi og Svíþjóð bjóða saman upp á Climate Ambition Accelerator.
Á þessum kynningarfundi verður farið yfir skipulag og efnistök námskeiðsins. Í Climate Ambition Accelerator er lögð áhersla á að fyrirtæki sem taka þátt nái framförum í gegnum námið. Einnig verður farið yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar eins og tímalínu námskeiðsins, kröfur sem gerðar eru til þátttakenda, skuldbindingu og þátttökukröfur.
Tilgangurinn með Climate Ambition Accelerator er að hjálpa fyrirtækjum að hraða loftslagsaðgerðum, sama hvar þau eru stödd í sinni vegferð, veita þeim þá þekkingu og færni sem er nauðsynleg til að samræma aðgerðir þeirra við markmið um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráðu hækkun og um leið að stefna að kolefnishlutleysi árið 2050.
Námskeiðið er hannað af færustu sérfræðingum í samvinnu við SBTi og veitir aðgengi að alþjóðlegum bestu starfsvenjum, tækifærum til jafningjanáms, lotum sem eru sérstaklega hannaðar til að beita því sem er lært og þjálfun eftir þörfum.
Nánari upplýsingar um Climate Ambition Accelerator má finna
hér. Opnað fyrir umsóknir 21. febrúar 2024.

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram um miðjan janúar.
Líflegar umræður um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu, spunnust upp.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt






