Græna hagkerfið vex á methraða
19. febrúar 2026
Gjarnan er talað um að hægst hafi á grænum umskiptum. Raunveruleikinn er hins vegar sá að grænar fjárfestingar hafa ekki dregist saman. Skýrsla World Economic Forum (WEF) sýnir að græna hagkerfið er nú metið á meira en fimm billjónir Bandaríkjadala
á ári og er sá geiri sem er í hvað mestri sókn á eftir tæknigeiranum.
Tekjur af grænum lausnum vaxa að meðaltali tvöfalt hraðar en hefðbundnar tekjur og skapa fyrirtækjum í græna hagkerfinu því umtalsverð tækifæri til að vaxa og skapa verðmæti.
Greining WEF á yfir 6.500 fyrirtækjum gefur til kynna að fyrirtæki sem fjárfesta í grænum lausnum:
- Vaxi að meðaltali hraðar en fyrirtæki sem gera það ekki
- Eigi auðveldara með að afla fjármagns
- Laði að sér fjárfesta sem álíta grænar lausnir arðbærar til lengri tíma
- Njóti hærra verðmats á fjármálamörkuðum
Fyrirtæki fjárfesta
Fyrirtæki halda áfram að fjárfesta í og efla vindorku, rafknúin ökutæki og aðra tækni sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda og skapar um leið nýja markaði. Á sama tíma ryðja nýjar lausnir sér til rúms s.s. tækni til að takast á við losun koltvísýrings og metans, sjálfbær landbúnaður, viðskiptalíkön byggð á hringrásarhugsun og ný tæki og tól til loftslags- og áhættuspár.
Áþreifanlegur árangur
Markaðurinn er að færast í átt að lausnum sem draga úr áhættu, auka samkeppnishæfni í síbreytilegu umhverfi og standast áskoranir til lengri tíma. Fyrirtæki sem eru í fararbroddi þegar kemur að sjálfbærum lausnum og viðskiptaháttum eru því þegar farin að sjá árangur.
Skýrslan dregur þó fram að framvindan er misjöfn. Tæknilausnir á borð við sólar-, raf- og vindorku eru víða útbreiddar en annars konar lausnir, eins og þær sem snúa að vetnis- og kolefnisföngun, eru enn háðar pólitískum ákvörðunum og regluverki. Kína heldur áfram að styrkja stöðu sína með gríðarlegum fjárfestingum og hefur þannig mikil áhrif á samkeppni, meðal annars fyrir evrópsk fyrirtæki.
Þrír þættir sem aðgreina þá sem skara fram úr
WEF varpar ljósi á þrjá lykilþætti sem skilja á milli þeirra fyrirtækja sem ná raunverulegum árangri í vexti og verðmætasköpun innan græna hagkerfisins og þeirra sem gera það ekki. Metnaður einn og sér dugir ekki til.
Fyrirtæki sem ná raunverulegum árangri:
- Drífa áfram tækniframfarir: Fyrirtæki sem taka nýjar tæknilausnir snemma í notkun lækka kostnað og eru með forskot þegar eftirspurn eykst
- Hafa djúpan skilning á markaðsumhverfinu og móta það: Í umhverfi þar sem reglur og viðmið breytast hratt skiptir sköpum að skilja leikreglurnar og taka virkan þátt í að móta þær
- Tryggja sér aðgang að fjármagni: Fyrirtæki sem geta sýnt fram á sjálfbært viðskiptalíkan sem tryggir stöðugan árangur og eftirspurn til langs tíma laða að sér fjárfesta sem vilja snemma aðkomu að nýjum markaðstækifærum
Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að græna hagkerfið vaxi um allt að tvær billjónir Bandaríkjadala. Fyrirtæki sem vilja taka næsta skref standa því frammi fyrir verulegum tækifærum. Spurningin er einföld: Hverjir ætla að sækja fram á meðan aðrir sitja eftir?
Skýrslu World Economic Forum um græna hagkerfið má finna með því að smella HÉR
- Vaxi að meðaltali hraðar en fyrirtæki sem gera það ekki
- Eigi auðveldara með að afla fjármagns
- Laði að sér fjárfesta sem álíta grænar lausnir arðbærar til lengri tíma
- Njóti hærra verðmats á fjármálamörkuðum
- Drífa áfram tækniframfarir: Fyrirtæki sem taka nýjar tæknilausnir snemma í notkun lækka kostnað og eru með forskot þegar eftirspurn eykst
- Hafa djúpan skilning á markaðsumhverfinu og móta það: Í umhverfi þar sem reglur og viðmið breytast hratt skiptir sköpum að skilja leikreglurnar og taka virkan þátt í að móta þær
- Tryggja sér aðgang að fjármagni: Fyrirtæki sem geta sýnt fram á sjálfbært viðskiptalíkan sem tryggir stöðugan árangur og eftirspurn til langs tíma laða að sér fjárfesta sem vilja snemma aðkomu að nýjum markaðstækifærum

Kauphegðun og ákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á vinnuaðstæður, mannréttindi og umhverfi í öllu virðiskeðjunni. Þrátt fyrir það er hlutverk innkaupa oft vanmetið þegar kemur að áreiðanleikakönnunum (HRDD). Þessi vefstofa er sú önnur í röðinni af þremur um ábyrg innkaup og er unnin í samstarfi við Responsible Contracting Project (RCP). Sjónum verður beint að hagnýtri innleiðingu ábyrgra innkaupaferla, hvernig megi endurskoða núverandi vinnulag og hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Fjallað verður um raundæmi úr textíl-, landbúnaðar-, flutninga- og bílaiðnaði. Helstu spurningar sem svarað verður: Hvað einkennir óábyrga innkaupahætti? Hvaða grunnkröfur um ábyrg innkaup ættu fyrirtæki að innleiða þvert á allar vörur og þjónustu? Hvaða áhættumiðaðar innkaupaaðferðir þarf að beita í áhættugreinum? Hvaða raundæmi og lausnir nýtast best í starfi? Fyrir hverja: Vefstofan er ætluð innkaupastjórum, sérfræðingum í sjálfbærum innkaupum og þeim sem bera ábyrgð á mannréttinda- og umhverfisáreiðanleikakönnunum (HREDD). Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 11. nóvember Tími: K l. 09:00–11.00 að íslenskum tíma . Fyrirlesari: Daniel Schönfelder, lögfræðilegur ráðgjafi hjá RCP Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Önnur lota námskeiðaraðarinnar Sustainability TrendsWatch 2026 fer fram þriðjudaginn 24. nóvember á vegum UN Global Compact Academy. Lotan ber yfirskriftina The Clean Energy Advantage: How a Just Transition Can Ensure Business Resilience. Í námskeiðaröðinni er farið yfir nýjustu strauma og horfur í sjálfbærni atvinnulífsins, tækifæri og það sem stjórnendur þurfa að hafa að leiðarljósi til að vaxa og hafa áhrif. Í þessari lotu er sjónum beint að orkuskiptunum: hvað drífur þau áfram, hvað hindrar útbreiðslu hreinnar orku og hvernig fyrirtæki geta nýtt fjárfestingar, kaupmátt og samtakamátt til að auka hlut endurnýjanlegrar orku og skapa verðmæti til lengri tíma. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Þriðjudagurinn 24. nóvember Tími: Kl. 14:00–15:00 að íslenskum tíma. Tungumál: Enska, með þýðingu á spænsku, portúgölsku og frönsku. Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Understanding Responsible Procurement and Shared Responsibility er yfirskrift vefnámskeiðs sem haldið verður á vegum UN Global Compact Deutschland miðvikudaginn 21. október. Námskeiðið er það fyrsta í röð þriggja vefnámskeiða um ábyrg innkaup. Innkaupaákvarðanir fyrirtækja hafa bein áhrif á öryggi og mannlega reisn fólks í aðfangakeðjum. Ábyrg innkaup þýða að innkaup fari fram í samræmi við mannréttindi og umhverfið, en þau eru enn lítið nýtt í áreiðanleikakönnunum á sviði mannréttinda. Meðal umfjöllunarefna: Lagalegar skyldur og kröfur ESB um ábyrg innkaup Alþjóðleg viðmið: CSDDD, UTP-tilskipunin og leiðbeiningar OECD Sameiginleg ábyrgð kaupenda og birgja Leiðir til að skipta kostnaði Hagnýt ráð um hvað ber að gera og forðast Fyrirlesari er Michaela Streibelt , evrópskur lögfræðiráðgjafi hjá RCP. Námskeiðið er ætlað starfsfólki innkaupa og sjálfbærra innkaupa og þeim deildum sem sjá um innleiðingu áreiðanleikakannana í mannréttindamálum. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 21. október Tími: K l. 08:00–09:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning

Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri United Nations Global Compact og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Ísland þann 15. júní 2026. Þetta var fyrsta heimsókn Söndu til landsins og tækifæri til að ræða framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar þróunar og möguleika á auknu samstarfi. Í heimsókninni fundaði Sanda með forseta Íslands, fulltrúum stjórnvalda, stjórn UN Global Compact á Íslandi og leiðtogum íslensks atvinnulífs. Áhersla var á hvernig ábyrgir viðskiptahættir geta styrkt traust, viðnámsþrótt og samkeppnishæfni á tímum alþjóðlegrar óvissu. Samtal við leiðtoga íslensks atvinnulífs Lokað hringborðssamtal með forstjórum þátttökufyrirtækja UN Global Compact á Íslandi fór fram í Grósku. Þar var rætt um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig stjórnendur geta brugðist við óvissu, stýrt áhættu og skapað langtímaverðmæti. Landfræðipólitísk spenna, örar tæknibreytingar og auknar kröfur um ábyrgð og gagnsæi setja fyrirtækjum nýjar áskoranir. Samtalið beindist að hlutverki forystu við þessar aðstæður og því hvernig sjálfbærni og ábyrgir viðskiptahættir geta orðið hluti af stefnu og kjarnastarfsemi fyrirtækja. Hlutverk Íslands og næstu skref tengslanetsins Á morgunverðarfundi með stjórn UN Global Compact á Íslandi var rætt um áframhaldandi uppbyggingu tengslanetsins og hvernig það geti sem best stutt íslensk fyrirtæki. Meðal umræðuefna voru styrkleikar Íslands, meðal annars á sviði hreinnar orku, og tengsl trausts, ábyrgðar og samkeppnishæfni. Fundir með stjórnvöldum og forseta Íslands voru jafnframt tækifæri til að ræða hlutverk atvinnulífsins í sjálfbærri þróun og mikilvægi samstarfs þvert á geira og landamæri. Heimsóknin undirstrikaði hlutverk UN Global Compact Ísland við að tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóðlega þekkingu, samtal og samstarf. Íslensk fyrirtæki hafa bæði tækifæri til að læra af öðrum og miðla eigin reynslu og lausnum. Með því að leiða saman fyrirtæki, stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila getur tengslanetið stutt við ábyrga viðskiptahætti og aukið framlag íslensks atvinnulífs til sjálfbærrar framtíðar.

UN Global Compact býður til vefnámskeiðs fimmtudaginn 8. október . Námskeiðið heitir AI and Human Rights: Powering the Future Through a Just Energy Transition . Gervigreind kallar á mikla orku og nýja innviði. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta byggt upp orkuinnviði fyrir gervigreind í samræmi við mannréttindi og viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Meðal annars verður rætt um mannréttindaáhættu í innviðum gervigreindar, raunverulegt samráð við hagaðila, rétt samfélaga til lands og auðlinda og sanngjarna skiptingu ávinnings. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Fimmtudagurinn 8. október Tími: K l. 13:00–14:30 að íslenskum tíma . Þeir sem komast ekki geta skráð sig og fengið upptöku senda að námskeiði loknu. Skráning
Mánudaginn 21. september buðu Skanska Group og norrænu landsnet UN Global Compact til lokaðs hringborðs forstjóra á Loftslagsvikunni í New York (Climate Week NYC). Fundurinn fór fram í Empire State-byggingunni undir yfirskriftinni „Frá óvissu til fjárfestinga“ (e. From Uncertainty to Investment). Þar ræddu stjórnendur og leiðtogar úr atvinnulífinu samkeppnishæfni, seiglu og leiðir til að gera sjálfbærnimarkmið að viðskiptalegum veruleika. Anders Danielsson, forstjóri Skanska Group, var gestgjafi fundarins og Philip Thormark, framkvæmdastjóri UN Global Compact Network Sweden, stýrði umræðum. Frá Íslandi sótti Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavik Geothermal, samkomuna. Rauði þráðurinn var skýr: við getum ekki beðið eftir fullkominni vissu áður en gripið er til aðgerða. Áhættu má meta og verðleggja, en óvissu ekki. Þess vegna skipta markviss stefna stjórnvalda og fyrirsjáanlegt regluverk öllu máli — með þeim breytist óvissa í áhættu sem unnt er að stýra og taka fjárfestingarákvarðanir út frá. Umræðurnar fóru fram samkvæmt Chatham House-reglunni, sem stuðlar að opnu og hreinskilnu samtali þar sem ummæli eru ekki tengd við einstaka þátttakendur eða fyrirtæki. Fundurinn var hluti af viðburðaríkri viku í New York, en UN Global Compact á Íslandi tók einnig þátt í móttöku í Scandinavia House 20. september og á leiðtogafundinum (Leaders Summit) dagana 22. og 23. september. Fyrirtæki sem vilja fræðast nánar eða taka þátt í áframhaldandi samtali geta haft samband við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra UN Global Compact á Íslandi, á audur@globalcompact.is.

Utanríkisráðuneytið og UN Global Compact á Íslandi bjóða til lokaðs morgunverðarfundar með Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), miðvikudaginn 30. september í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn er hugsaður sem gagnvirkt samtal þar sem þátttakendur ræða beint við Rania og aðra fulltrúa WFP um möguleg samstarfstækifæri. WFP eru stærstu mannúðarsamtök í heimi og starfa meðal annars á sviði neyðaraðstoðar, flutninga, nýsköpunar o.fl. Samtökin leggja nú aukna áherslu á samstarf við atvinnulífið og vilja kanna sérstaklega hvernig þekking, lausnir og reynsla íslenskra fyrirtækja gætu nýst í því samhengi. Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, opnar fundinn. Rania flytur því næst erindi og svo hefjast opnar umræður, þar sem þátttakendur ræða hvar sérstaða fyrirtækja þeirra liggur og hvernig byggja megi upp samstarf sem er hagnýtt, trúverðugt og getur vaxið. Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: Miðvikudagurinn 30. september 2026 Tími: Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn stendur frá kl. 9 til 10 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík Fundurinn er eingöngu fyrir boðsgesti og sætafjöldi er takmarkaður. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Auði Hrefnu á audur@globalcompact.is fyrir lok dags föstudagsins 25. september.

Þessu mælum við með á UNGA og Climate Week 2026 Dagana 20.–27. september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (UNGA) og Climate Week NYC í New York. Um er að ræða eina stærstu samkomu ársins þar sem stjórnvöld, fyrirtæki og félagasamtök koma saman. Það eru meira en 1000 viðburðir í boði en hér eru þeir viðburðir sem UN Global Compact á Íslandi mælir sérstaklega með. Sunnudagur 20. september Launch to UNGA and Climate Week – Scandinavia House, 17:00–20:00. Samstarfsaðilar: Miltton, norrænu UNGC-netin, ræðismannsskrifstofan, UNGC í Bandaríkjunum og Kanada. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/registration-ungc-miltton-new-sustainability Mánudagur 21. september Skanska & UN Global Compact Nordic Networks Roundtable - Empire State Building 8:00-10:30. Invite only - áhugasamir um þátttöku hafi samband audur@globalcompact.is Solving the Paradox – Danish Event, Hudson Yards. Sýna áhuga á þátttöku: https://mfa-events.dk/partnershipsforthefuture26/climate-finance-summit Miðvikudagur 23. september Towards COP31 Event by the Finnish Pavillion , 12:00–13:30. Skráning: https://tapahtumat.globalcompact.fi/towards-cop31 Circular Innovations & Resilient Futures: Insights From the Arctic, 14:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Climate-Week-Arctic-Registration Fimmtudagur 24. september Nordic Summit: Resilient Cities – Scandinavia House / Nordic Consulates, 08:30–11:00. Skráning: https://luma.com/gc91v8ib Cold Capitals: Beyond Power – 12:30–14:30. Skráning: https://share-eu1.hsforms.com/16jkhJ-ejRl2V1F1mmn3Pjw2eythf Sauna Diplomacy from Finland: Hot Ideas for a Circular Future , 15:00–17:00. Skráning: https://www.lyyti.fi/reg/Sauna-Diplomacy-Register Nánari upplýsingar um hliðarviðburði United Nations Global Compact á UNGA81: https://events.unglobalcompact.org/sideevents2026


