Sjálfbærni í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja

12. febrúar 2026

Lítil og meðalstór fyrirtæki innleiða í auknum mæli sjálfbærni í kjarnastarfsemi sína til að betrumbæta starfshætti og styðja við reksturinn. UN Global Compact styður lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja leggja í þá vegferð með fræðslu, hagnýtum verkfærum, alþjóðlegu tengslaneti og stuðningi við mælingu og greiningu á framvindu.

Handbók, unnin af UN Global Compact Network Switzerland & Liechtenstein, leiðir lítil og meðalstór fyrirtæki í gegnum fjögur skýr og hagnýt skref sem styðja við markvissa innleiðingu á sjálfbærni í kjarna reksturs.

Skrefin eru eftirfarandi en þau má nálgast í smáatriðum í handbókinni hér

1.Kortleggja forgangsefni fyrirtækisins í sjálfbærnimálum

Hvar í rekstri og virðiskeðjunni liggja helstu tækifæri, áskoranir og áhrif á umhverfi og samfélag?

 
2. Móta sjálfbærnistefnu og setja upp “action-plan”

Hvaða skýru, mælanlegu og raunhæfu markmið hjálpa til við að umbreyta sjálfbærniforgangsefnum í skýra áætlun sem styður við reksturinn?

 
3. Innleiða aðgerðir í daglega starfsemi og ákvörðunartöku fyrirtækisins

Eru aðgerðir sem styðja við markmið fyrirtækisins þannig innleiddar að þær endurspeglist í skýru verklagi, uppfærðum verklagsreglum og virkri þátttöku lykildeilda?

4. Mæla og miðla árangri

Er framvinda mæld og henni miðlað á skýran hátt þannig að niðurstöður nýtist til að efla og þróa rekstur fyrirtækisins á sjálfbæran hátt?


27. maí 2026
Auður Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland, hefur lokið Claude AI námskeiðinu á íslensku og hlotið staðfestingu á AI-læsi (Certificate of Completion — Staðfesting á AI-læsi með Claude). Námskeiðið er liður í markvissri uppbyggingu félagsins, þar sem áhersla er lögð á að nýta gervigreind af þekkingu, ábyrgð og með skýrum ramma. Nýtt félag byggt á ábyrgum grunni UN Global Compact Ísland er ungt félag í örum vexti. Stjórn og framkvæmdastjóri hafa lagt áherslu á að byggja starfsemina upp í anda þeirra tíu meginmarkmiða sem félagið stendur fyrir á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfisverndar og baráttu gegn spillingu. Þetta á ekki síður við um nýjar tæknilausnir. „Þegar verið er að byggja upp nýtt félag skiptir máli að gera það rétt frá byrjun,“ segir Auður Hrefna. „Gervigreindin er komin til að vera og hún getur hjálpað litlu skrifstofunni okkar að veita þátttakendum okkar betri þjónustu og ná sínum markmiðum. En þá þarf að nota hana rétt.” Hvers vegna AI-læsi skiptir máli United Nations Global Compact hefur á alþjóðavísu lagt áherslu á að gervigreind sé bæði tækifæri og áhætta fyrir sjálfbæran rekstur. Í greiningu samtakanna um gervigreind og Heimsmarkmiðin kemur fram að gervigreind hafi möguleika á að styðja við mannréttindi, bæta vinnuaðstæður, vernda umhverfið og vinna gegn spillingu en að fullnýting þeirra möguleika krefjist meðvitaðrar hönnunar, ábyrgrar stjórnunar og þátttöku breiðs hóps. Skýrsla UN Global Compact og Accenture, Generative AI for the Global Goals , tekur í sama streng og hvetur til ábyrgrar þróunar gervigreindar þar sem nýsköpun er í jafnvægi við inngildingu, sjálfbærni og sanngirni. Fyrir lítið félag eins og UNGC Ísland þýðir þetta í verki að starfsfólk skilji hvað gervigreindin getur og hvað hún getur ekki. Þannig nýtist hún best þar sem hún léttir undir í verkefnum, yfirferð, þýðingum, undirbúningi fræðsluefnis og samantektum svo tími starfsfólks fari frekar í það sem skiptir mestu máli sem eru samskipti við þátttökufyrirtæki, að byggja upp tengsl og efla samstarf. Gervigreindin kemur ekki í staðinn fyrir fólk Hjá UN Global Compact Ísland er gervigreindin nýtt sem aðstoðartæki í daglegum störfum m.a. til undirbúnings fræðslu- og markaðsefnis og greininga en aldrei til að taka yfir mannlegt mat eða samskipti við fólk. „Gervigreindin getur hjálpað mér að semja texta og bæta góðar hugmyndir, en hún getur ekki skapað þessa dýnamík sem verður til í samtali milli okkar og þátttakenda, þar er einlægnin, hluttekningin og augnablikin þegar tveir fá saman góða hugmynd um hvernig takast má á við áskoranir og samgleðjast þegar vel gengur.“ segir Auður Hrefna. „Hún getur ekki lesið milli línanna í samtali, hún ber ekki ábyrgð og hún getur ekki staðið fyrir gildum félagsins. Það gerum við.“ Brúin milli alþjóðlegra viðmiða og íslensks atvinnulífs UN Global Compact Ísland mun halda áfram að gera gervigreindina að umræðuefni og styðja við fyrirtæki á þessari vegferð á næstu misserum, meðal annars með viðburðum og fræðslu. Þátttökufyrirtæki hafa nú þegar aðgang að námskeiðunum AI and Human Rights 101 og Responsible Investing into AI , sem gefa fyrirtækjum verkfæri til ábyrgrar þróunar og innleiðingar gervigreindar. „Við hvetjum þátttökufyrirtækin okkar til að nýta sér þessa fræðslu og vera leiðandi í samtalinu um ábyrga gervigreind, því hvernig við nýtum hana skiptir samfélagið allt máli. Hvað varðar félagið á Íslandi þá ætlum við að sýna í verki að það er hægt að byggja upp lítið félag með nútíma tækni án þess að gefa afslátt af gildunum okkar,“ segir Auður Hrefna. Námskeið UN Global Compact um ábyrga þróun og innleiðingu á gervigreind má finna hér: https://unglobalcompact.org/academy/responsible-ai-navigator
19. maí 2026
Aðalfundur UN Global Compact á Íslandi fór fram í síðustu viku og var vel heppnaður. Á fundinum var farið yfir starfsemi og rekstur síðasta árs og þau spennandi verkefni sem framundan eru hjá félaginu á Íslandi. Við þökkum þeim sem lögðu leið sína í Hús atvinnulífsins til að taka þátt í fundinum innilega fyrir komuna. Um er að ræða fyrsta aðalfund félagsins frá stofnfundi þess en hann fór fram fyrir rúmu ári. Á þeim fundi var fyrsta stjórn félagsins kosin en hún hefur unnið öflugt starf síðastliðið ár og hefur starfsemin eflst eftir því. Þær Hjördís Lára Hlíðberg, Kristín Þöll Skagfjörð Sigurðardóttir og Þóra Jónsdóttir, sem hafa setið í stjórn síðastliðið ár ljúka nú stjórnarsetu og fá sérstakar þakki fyrir öflugt starf í þágu félagsins og frábært samstarf. Þá voru þrír nýir aðilar kosnir inn í stjórn félagsins á aðalfundinum í síðustu viku en þau Birta Kristín Helgadóttir (Business Iceland), Gunnlaugur Bjarki Snædal (Isavia) og Stefán Sveinbjörnsson (Festi hf.) taka nú sæti í stjórn. Við hlökkum mikið til að vinna með þeim og nýrri stjórn að því að efla starf okkar í þágu sjálfbærs atvinnulífs enn frekar.
8. maí 2026
UN Global Compact býður virkum þátttakendum í UN Global Compact að taka þátt í SPARK, alþjóðlegu fræðsluprógrami sem UN Global Compact stendur fyrir en prógramið er hannað til að hjálpa fyrirtækjum að efla sjálfbærni sinnar virðiskeðju. Kröfur um sjálfbærni í virðiskeðju hafa aukist og því leita mörg fyrirtæki að hagnýtum leiðum til að ýta undir seiglu, auka gagnsæi og styðja við frammistöðu sinna birgja. SPARK er skýrt og vel uppbyggt fræðsluprógram sem veitir birgjum verkfærin og leiðbeiningarnar sem þeir þurfa til að ná árangri. Af hverju ætti fyrirtæki að taka þátt? Með þátttöku í SPARK geta fyrirtæki aukið sjálfbærni í virðiskeðju og þar með aukið eigin samkeppnishæfni, stuðlað að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, aukið yfirsýn yfir framvindu og frammistöðu birgja og styrkt tengsl við birgja í gegnum sameiginleg markmið og markvissan stuðning. Á þremur mánuðum munu birgjar þeirra fyrirtækja sem taka þátt í SPARK öðlast hagnýta þekkingu á lykilþáttum sjálfbærni, svo sem þeim tengdum umhverfi, ábyrgum vinnumarkaði, og ábyrgum stjórnarháttum. Markmiðið er að birgjar mæti væntingum ykkar fyrirtækis í auknu mæli og með skilvirkari hætti. Slíkt ýtir undir samkeppnishæfni ykkar fyrirtækis. Skráning opin! Við bjóðum virkum íslenskum þátttökufyrirtækjum sem vilja efla sjálfbærni sinnar virðiskeðju að að skrá sig í SPARK prógramið. Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: stefania@globalcompact.is Skráning er opin til 31. maí
4. maí 2026
Eftir því sem sjálfbærniregluverk ESB þyngist þurfa fyrirtæki í auknum mæli að sýna fram á hvernig þau standa sig þegar kemur að sjálfbærni. Fjármálageirinn gegnir þar mikilvægu hlutverki, þar sem fjármálastofnanir og fjárfestar nýta þessar upplýsingar við ákvarðanir um fjármögnun, fjárfestingar og áhættu. Taktu þátt í annarri lotu 2026 Academy EU Sustainability Navigator Webinar Series: “Finance and EU Sustainability: Mobilizing Capital for Impact” 📅 20. maí ⏰ kl.13:00 (Ísland) 💻 Vefnámskeið Á vefnámskeiðinu verður fjallað um hlutverk fjármálageirans í innleiðingu regluverks og hvað það þýðir fyrir fyrirtæki. Þátttakendur munu fá innsýn í hvernig fjármálastofnanir túlka upplýsingar um sjálfbærni og nýta gögn um frammistöðu á sviði sjálfbærni til að móta úthlutun á fjármagni. Hvað þýðir þetta fyrir þitt fyrirtæki? Skráning og frekari upplýsingar: https://lnkd.in/d5TzrhSZ
Aðalfundur UN Global Compact Ísland verður haldinn mánudaginn 11.maí 2026 kl.11-12 í Húsi atvinnulíf
15. apríl 2026
Aðalfundur UN Global Compact Ísland Aðalfundur UN Global Compact Ísland verður haldinn mánudaginn 11.maí 2026 kl.11-12 í Húsi atvinnulífsins og hvetjum við fulltrúa þátttökufyrirtækja okkar eindregið til þess að mæta á fundinn og deila hugmyndum eða tillögum að því hvernig félagið geti best styrkt starfsemina. Skráning á aðalfund: Smelltu hér Tilnefningar í stjórn Nú er rúmt ár liðið frá stofnun UN Global Compact Ísland og skipun fyrstu stjórnar félagsins. Starfsemi okkar í þágu sjálfbærs atvinnulífs á Íslandi hefur því stóreflst síðastliðið ár. Við hlökkum til að styrkja starfsemina enn frekar og leitum nú að þremur nýjum stjórnarmeðlimum. Við leitum að fólki sem hefur skýra sýn á sjálfbærni og áhuga á að móta framtíðarstarf UN Global Compact Ísland. Tilnefningar í stjórn: Smelltu hér Allir þátttakendur UN Global Compact eiga rétt á að senda tilnefningu. Við hvetjum áhugasöm til að senda inn tilnefningu eða tilnefna aðila sem gæti hentað í þetta mikilvæga hlutverk. Hver eru skilyrði fyrir tilnefningu? Að fulltrúi sem tilnefndur er, starfi hjá fyrirtæki sem er þátttakandi í UN Global Compact. Að fyrirtæki sé virkur þátttakandi í starfi samtakanna og hafi skilað inn tilheyrandi gögnum því til staðfestingar s.s. framvinduskýrslu (CoP) og hafi greitt félagsgjöld. Að fulltrúi hafi áhuga, reynslu og þekkingu á sjálfbærnimálum. Fari tilnefndur aðili ekki fyrir málaflokknum innan fyrirtækis skal koma fram í umsókn skriflegur stuðningur forstjóra, framkvæmdastjóra eða forstöðumanns sjálfbærni. Hvernig tryggir UNGC jafnræði og fjölbreytni við tilnefningu til stjórnar? Leitast er við að tryggja jafnræði og fjölbreytni við skipan stjórnar, meðal annars með því að fulltrúar komi frá ólíkum þátttökufyrirtækjum, bæði hvað varðar stærð og starfssvið og að seta í stjórn leiði ekki til mögulegra hagsmunaárekstra. Þá er leitast við að einn fulltrúa komi frá óhagnaðardrifnu félagi (e. Non-business participant). Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um, enda er markvisst leitast við að jafna kynjahlutfall í stjórn félagsins og tryggja fjölbreytta og sterka skipan hennar. Ertu með spurningu tengda aðalfundinum og/eða tilnefningu í stjórn? Hafðu samband við okkur: stefania@globalcompact.is
Hvað getur fyrirtæki gert til að ná árangri og axla aukna ábyrgð í loftslagsmálum? Fyrir Advania á Í
13. apríl 2026
Hvað getur fyrirtæki gert til að ná árangri og axla aukna ábyrgð í loftslagsmálum? Fyrir Advania á Íslandi lá svarið í skýrri markmiðasetningu og því að samræma loftslagsmetnað við vísindi. Árið 2021 setti Advania sér losunarmarkmið í samræmi við Science Based Targets initiative (SBTi) og varð þar með fyrsta stóra uppl
30. mars 2026
Aðalfundur UN Global Compact Ísland verður haldinn mánudaginn 11. maí 2026 kl.11-12 í Húsi atvinnulífsins. Við hvetjum fulltrúa þátttökufyrirtækja eindregið til þess að mæta á fundinn og deila hugmyndum eða tillögum að því hvernig félagið geti best þjónað markmiðum ykkar og styrkt starfsemina hér á landi. Fyrirtækjum er velkomið að senda fleiri en einn fulltrúa. Á fundinum verða hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins, þar á meðal skýrsla stjórnar, yfirferð ársreiknings, stjórnarkjör og önnur löglega fram borin mál. Dagskrá verður birt síðar hér á heimasíðunni. Form til skráningar á aðalfundinn má nálgast með því að smella hér Dagskrá fundar Fundur settur Kosning fundarstjóra Kosning ritara Staðfesting lögmæts fundarboðs Skýrsla framkvæmdastjóra Ársreikningur lagður fram til staðfestingar Ný stefna UN Global Compact kynnt Kosning stjórnar Kosning endurskoðanda Önnur mál
24. mars 2026
Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00
12. mars 2026
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur með vel heppnuðum viðburði sem skapaði vettvang fyrir samtal um jafnrétti í atvinnulífinu.
5. mars 2026
Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.
Fleiri færslur