Halló! Hvaða bakslag? - Vel heppnaður viðburður
25. febrúar 2026
Sameiginlegur fundur UN Global Compact og UN Women Ísland, undir yfirskriftinni Halló! Hvaða bakslag?, um bakslag í jafnréttismálum og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf fór fram þann 13.janúar síðastliðinn.
Viðburðurinn fór fram á svokölluðu rakarastofuformi (e. barbershop) á Berjaya Reykjavík Natura Hotel og vakti þátttakendur til umhugsunar um birtingarmyndir bakslags í jafnréttismálum innan fyrirtækja, sem og víðar í samfélaginu.
Áhugaverðar og líflegar umræður spunnust upp. Þó flestir teldu söðuna innan eigin fyrirtækja nokkuð sterka sammæltust þátttakendur um að bakslag sé sýnilegt í samfélagsumræðu og að mikilvægt sé að sofna ekki á verðinum.
Meðal umræðuefna fundarins voru:
Ávinningur sem hlýst af auknu jafnrétti og fjölbreytileika
Sýnilegt fordæmi stjórnenda
Raunverulegar aðgerðir sem styðja við jafnrétti
Fæðingarorlof og foreldrahlutverk
Jafnlaunavottun og mælingar
Þátttakendur voru sammála um að jafnrétti sé lykilforsenda heilbrigðs reksturs og að skýr markmið, reglulegar mælingar og virk forysta sé nauðsynleg svo að árangur náist á sviði jafnréttismála á tímum bakslags.
Ávinningur sem hlýst af auknu jafnrétti og fjölbreytileika
Sýnilegt fordæmi stjórnenda
Raunverulegar aðgerðir sem styðja við jafnrétti
Fæðingarorlof og foreldrahlutverk
Jafnlaunavottun og mælingar

Auður Hrefna, framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland, kynnir dagskrá fyrir þátttakendum

Nú er skráning opin á vefnámskeiðið “Non-Discrimination & Equality” Vefnámskeiðið “non-discrimination and equality” er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja styðja við jafnrétti og inngildingu með starfsemi sinni. Er fyrirtækið þitt tilbúið að stíga markviss skref til að greina, meta og bregðast við áhættum tengdum mismunun? Vefnámskeiðið leiðir þig í gegnum ferlið með hagnýtum verkfærum, sérfræðiráðgjöf og stuðningi annara líkt þenkjandi fyrirtækja. Vefnámskeiðið inniheldur sex lotur og er leitt af færum sérfræðingum. Þáttakendur munu læra að meta hvaða áhrif starfsemi þeirra fyrirtækis hefur og að forgangsraða aðgerðum sem sporna við mismunun og ójafnrétti á vinnustað, í virðiskeðju og í samfélaginu. Námskeiðið fer fram á ensku og er samstarfsverkefni staðarneta UN Global Compact á Norðurlöndum og í Hollandi. Viltu vita meira um námskeiðið? Kynningarfundur um námskeiðið, innihald þess, uppbyggingu og umsóknarferlið verður haldinn þann 23. apríl . Kynningin fer fram á netinu en þar geta fyrirtæki spurt spurninga og metið hvort námskeiðið henti þeim. Dagsetning: 23. apríl Tími: 12:00 - 13:00

Kickstart your company’s work on circular economy and unlock new opportunities Join the Circular Economy Starter Pack – a practical learning journey designed to equip businesses with foundational circular economy knowledge, concrete tools, and the confidence to move circularity from ambition to action. By participating, you will: Gain an introduction to the fundamentals of circular economy and its core principles Understand the business case for resilience, competitiveness, and long-term value creation Learn about opportunities that circularity can unlock for your business Get an overview of the regulatory landscape Explore how to implement circular approaches in practice Hear directly from experienced practitioners The starter pack includes a five-part webinar series and access to an interactive discussion platform where you can ask questions directly to circular economy experts and connect with peers across countries and sectors. Participation is open to all knowledge levels and is particularly recommended for professionals with beginner to intermediate expertise in circular economy.

Sjálfbærni er ekki jaðarmál, heldur lykilforsenda verðmætasköpunar, trausts og stöðugleika. Á tímum óróa í alþjóðamálum, efnahagslegra áskorana og loftslagsvár er mikilvægara en nokkru sinni að fyrirtæki leiði af samfélagslegri ábyrgð. Þetta undirstrikar Sanda Ojiambo, framkvæmdastjóri UN Global Compact, í árlegu frétt






